Náttúruöflin minntu á sig hérna hjá okkur í Garðinum í gærkvöldi og veðrið varð hundleiðinlegt eins og víðar. Mestu vindhviður kvöldsins voru um 36.9 m/sek samkvæmt sjálfvirkum mæli á Garðskagavita. Veðrið gekk þó fljótt yfir sem betur fer. Þegar veðrið stóð sem hæst í gærkvöldi þá fengum við símtal frá nágrannakonunni okkar á Vörum þar sem hún varaði við því að vera við suðurgluggana í húsinu. Þakið á hesthúsinu þeirra hafði fokið, plötur voru að fjúka og björgunarsveitin var að störfum. Ari fór hérna út hjá okkur og allt virtist vera í lagi hjá okkur, það kemur samt allt betur í ljós þegar birtir. Það er svo lítil lýsing hérna niður við sjóinn hjá okkur. Kv. Ág.
föstudagur, desember 12, 2008
fimmtudagur, desember 11, 2008
Opnar vinnustofur við Gauksstaðaveg
Ég vil bara minna ykkur á að við erum með opna vinnustofu hérna hjá okkur á Gauksstöðum í Garði næstu tvær helgar fram að jólum frá kl. 13:00 til 18:00. Endilega kíkið við hjá okkur og nágranna okkar honum Reyni Katrínarsyni en hann hefur einnig opnað vinnustofu sína fyrir gestum og gangandi næstu helgar fram að jólum á sama tíma og við. Á vef Víkurfrétta má sjá smá umfjöllun um þessar opnanir. Kv. Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
Labels: Dagbók, Gallerí, Opin vinnustofa
þriðjudagur, desember 09, 2008
Kærleiksvika
Þessa vikuna er kærleiksvika á leikskólanum Gefnarborg. Þá er kærleikanum sérstaklega veitt athygli. Þetta eru alltaf yndislegar vikur á leikskólanum, þessar þemavikur. Það mætti alveg vera svona kærleiksvika í hinu almenna dagatali þar sem við íslendingar allir hugsuðum sérstaklega um kærleikann og sýndum hann í verki. Þá er kannski ágætt núna að spyrja sig aðeins „hvað er kærleikur“? Kv. Ág.
Hvað er kærleikur ?
Kærleikur er, hvert góðverk sem þú vinnur.
Kærleikur, er hvert bros sem þú gefur.
Kærleikur, er að faðma þann sem grætur.
Kærleikur, er að hugga þann sem syrgir.
Kærleikur, er að gefa þeim sem þarfnast.
Kærleikur, er umhyggja fyrir öllu sem lifir.
Kærleikur, er að biðja fyrir öllum, góðum sem slæmum.
Kærleikur, er að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra.
Kærleikur, er að dæma ekki.
Kærleikur, er ljósið sem býr í hjarta þínu.
... Ágústa 0 orð í belg
sunnudagur, desember 07, 2008
Opin vinnustofa á Gauksstöðum
Allar helgar fram að jólum verða við með opið hús á vinnustofunni okkar hérna á Gauksstöðum í Garði. Þar er hægt er að koma og sjá hvað við erum að vinna að ásamt því að þar verða til sölu ýmsir munir og vörur sem við höfum hannað og framleitt. Þær vörur sem við bjóðum upp á eru m.a.: Hnefatafl, íslensk rúnaspil, trérúnir í poka, ýmsir verndargripir úr timbri og málmi, spil og gestaþrautir, gripir mótaðir í eldi og hin sívinsælu jólaeplakerti og steinakerti ásamt ýmsum gjafaöskjum.
Við höfum lengi verið heilluð af arfleifð okkar íslendinga, náttúrinni sjálfri og því sem hún gefur af sér. Þetta nýtum við okkur í að gera nýja hluti sem byggja á þessum gamla grunni eins og rúnunum. Um að gera að kíkja við og sjá hvað við erum að gera núna í aðventunni. Einnig er Reynir Katrínarson með sína vinnustofu hérna að Gauksstaðavegi 2 opna á sama tíma fram að jólum.
Opið laugardaga og sunnudaga milli kl. 13:00 og 18:00.
Í dag 7. des verður einnig jólamarkaður hérna í Samkomuhúsinu í Garði frá 15:00 til 17:00. Þar verður fluttur söngur og fleira milli 16:00 og 17:00. Síðan verður kveikt á jólatrénu í Garðinum kl. 17:00.
Njótið dagsins :-)
... Ágústa 0 orð í belg
Labels: Gallerí, Opin vinnustofa
María Elísa er 4 ára í dag :-)
Elsku María okkar til hamingju með daginn í dag. Tíminn líður ferlega hratt og ég veit þú verður orðin fullorðin áður en maður veit af... alla vegana var það þannig með stóru systurnar þínar... það er svo stutt síðan þær voru 4 ára :-).
Njóttu dagsins, kv. litla fjölskyldan þín hérna á Gauksstöðum.
... Ágústa 1 orð í belg
Labels: Afmæliskveðjur, Dagbók
föstudagur, desember 05, 2008
Í froststyllu og veðurblíðu
Veðrið í dag var alveg yndislegt, svona veður þar sem maður fer allar sínar ferðir gangandi. Það er búið að vera kalt, bjart, fallegt og alveg stillt veður. Morgunhimininn var æðislegur... langaði hreinlega að fara út og anda honum að mér... ef þið vitið hvað ég meina :-). Það var eitthvað svo ferskt loftið og þægilegt að anda því að sér... svo nærandi þegar við gengum hérna heim að húsinu í dag... Gauksstaðir, nánasta umhverfið, útsýnið yfir sjóinn og á allan fjallahringinn er svo fallegt á svona dögum. Ég vildi að veturnir væru alltaf svona... þetta minnti mig svolítið á það hvernig veðrið er oft á Akureyri nema auðvitað að það er enginn snjór hérna hjá okkur.
Á svona degi fyllist hjarta manns af hamingju :-) Kv. Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
miðvikudagur, desember 03, 2008
Lífið á Gauksstöðum þessa dagana
Lífið hér á Gauksstöðum gengur sinn vanagang. Svavar og María braggast bara vel. Svavar byrjaði í 1. bekk núna í haust og námið gengur bara vel. Honum finnst skólinn skemmtilegur og það er aldrei vandamál að fara í skólann á morgnana. Eins gengur heimanámið vel, farinn að geta lesið töluvert og hann hefur gaman af því að auki. Duglegur drengur hann Svavar okkar. Hann er auðvitað orðinn töluvert stór og talar stundum þannig til Maríu „æji hún er svolítið lítil, er það ekki“ eða „þú mátt það þegar þú verður stór“. Hann ætlar auðvitað ekki að vera leiðinlegur en Maríu finnst þetta svolítið svekkjandi. Hún reynir hvað hún getur að sýnast stór þessa dagana, hún þykist meira að segja vera að lesa eins og hann þegar hann er að læra… þá hreyfir hún munninn eins og hún sé að lesa… ha ha hún er svo mikið krútt þessi elska :-).
María er búin að vera lasin, með flensu, síðan á föstudaginn síðasta. Henni finnst ekkert gaman að hanga svona inni allan daginn og vill helst fara í leikskólann hið fyrsta. Hún var hitalaus í dag þannig þetta er alveg að koma hjá henni. Vonum bara að fleiri verði ekki lasnir í framhaldinu. Nú styttist í að daman verði fjögurra ára en það verður á sunnudaginn kemur. Hana hlakkar mikið til.
Þessa dagana erum við á fullu að framleiða vörurnar okkar og undirbúa það að opna vinnustofuna okkar fyrir gestum og gangandi næstu helgar fram að jólum, þ.e. laugardaga og sunnudaga frá 13 – 18. Þar getur fólk kíkt á okkur og séð hvað við erum að vinna að ásamt því að versla af okkur jólagjafirnar ;-). Ég hvet ykkur kæru lesendur til að kíkja á okkur ef þið hafið tækifæri til þess.
Nú styttist óðum í jólin, aðeins rúmir 20 dagar til jóla. Tíminn hefur liðið alltof hratt eitthvað… ekki veit ég afhverju hann er að flýta sér þetta. Ég hef einhvernveginn ekki alveg gefið mig á vald jólastemmningunni en þetta kemur smá saman. Við erum búin að skreyta töluvert en ljósin eru samt ekki komin upp utandyra, það verður vonandi gert í næstu viku. Mér finnst alveg yndislegt að lýsa skammdegið upp með jólaljósunum :-).
Vonandi tekst mér að skrifa eitthvað meira hér inn áður en jólin ganga í garð. Þangað til, eigið góðar stundir og njótið samvista við hvert annað :-). Kv. Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður
Ég fékk í morgun sent þetta fallega ljóð frá alveg yndislegri manneskju. Textanum fylgdi að höfundur væri óþekktur. Ég grúskaði aðeins og komst að því að ljóðið er eftir skáldkonuna Unni Sólrúnu sem hefur ort margt fagurt um lífið og tilveruna og birt á heimasíðu sinni. Mig langar að leyfa ykkur að njóta þessa með mér :-)
Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður
vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður
ég vel að kúra um stund og staðnæmast við það
hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að.
Ég ákveð því að velja að vandamálin fá
vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá
tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti
ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti.
Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur
faðma þennan morgun og allar hans rætur
hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt
kex smyr með osti í blöðin svo ég lít.
Að endingu ég segi við þig sem þetta lest
þetta er góður dagur, hafðu það sem best
ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni
ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni.
... Ágústa 0 orð í belg

