mánudagur, september 29, 2008

Myndablogg: SJÓRÆNINGJAR Á GAUKSSTÖÐUM




Söngfuglar í Garðinum

Á fimmtudagdagskvöldið síðasta skrapp ég á tónleika hérna í Garðinum, nánar tiltekið í gamla góða samkomuhúsinu okkar. Fram komu hljómsveitin Crash sem er afsprengi Tónlistarskólans í Garði, Guðrún Haesler sem flutti frumsamin lög og lék á gítar en þetta var reyndar í fyrsta skiptið sem hún kom fram opinberlega. Hún tók líka frábært cover lag sem Tom Wait samdi en það var lagið „Hope I Don't Fall In Love With You“. Tónleikana enduðu síðan dúettinn Songbird sem skipaður er þeim Nönnu Bryndísi Hilmarsdóttur og Sigurði Frey Ástþórssyni. Þau voru auðvitað ljúf eins og venjulega... mikið hæfileikafólk þar á ferð... Nanna Bryndís tók m.a. nýtt lag sem var samið einungis tveimur dögum fyrr. Þetta voru fínir hausttónleikar sem voru hluti af menningardagskrá í tilefni af 100 ára afmæli Sveitarfélagsins Garðs. Takk fyrir mig :-) Kv.Ág.

sunnudagur, september 28, 2008

... 27 dögum síðar

Jæja, er ekki alveg kominn tími á nýtt blogg annars? Það er allt búið að vera við það sama síðan síðast. Við höfum fengið þó nokkrar heimsóknir og meira að segja litið sjálf inn á stöku stað :-).

Fyrir hálfum mánuði þ.e. fyrir tveimur helgum komu Birna og Hera og voru hjá okkur frá föstudegi fram á sunnudag. Það var alveg kominn tími á að hittast öll saman en það hafði ekki gerst síðan í byrjun maí. Birna og Hera! Takk fyrir yndislegar stundir. Þessa sömu helgi kíktum við í Úthlíðina til Þórarins bróður og fengum vöfflur a la Olga… nammi namm.

Um síðustu helgi fórum við í Þórkötlustaðaréttir með Þórarni bróður, Olgu, Kristínu og Jörn frá Berlín. Þar var margt um manninn og töluvert fé líka, háfaða rok og rigningadembur annað slagið. Þegar réttunum lauk fórum við öll heim á Gauksstaði og fengum pönnukökur a la Ari. Um kvöldið borðuðum við öll saman og þau gistu líka :-). Þetta var mjög skemmtilegt allt saman og áttum við góða kvöldstund saman þar sem sagðar voru hinar ýmsar sögur m.a. draugasögur. Börnunum leiddist ekki samveran og nýttu þau tímann vel en þau þrjú voru að göltrast hér á náttfötunum á sunnudagsmorgninum. Elsku Þórarinn og co, takk kærlega fyrir góða helgi :-). Þessa sömu helgi kíktum við á Sonju frænku og nýju íbúðina hennar, því miður voru Örvar og Selma ekki heima en krakkarnir fengu að leika samt að dótinu þeirra sem var ekki leiðinlegt og á meðan spjölluðum við hin um daginn og veginn. Aftur… fín íbúð… til lukku með hana!

Þessi helgi sem nú er að lokum komin er búin að vera mjög skemmtileg. Við erum búin að slaka bara vel á við tiltekt og fleira hérna heima. James vinur hans Svavars kom og lék við Svavar í nær allan gærdag. Við buðum svo aftur Særúnu vinkonu og fjölskyldu í mat í hádeginu í dag. Gamaldags íslenskt lambalæri… slurp. Alltaf gott að fá góða vini í heimsókn. Ástþór Helgi og Valdimar Steinn fengu að vera lengur eftir að mamma þeirra fór heim. Í hópinn bættust síðan Danilelline sem er skólasystir Svavars og Lára sem er árinu yngri en þau. Það var kátt á hjalla og ýmislegt brallað. María tók virkan þátt og eru hún og Lára orðnar fínar vinkonur.

Ég kveð að sinni, svolítið kvíðin fyrir næstu viku þar sem ég veit að ég þarf að gera svo margt, en ánægð með helgina… eigið góðar stundir. Kv. Ág.

mánudagur, september 01, 2008

Sumarið er liðið

Sumarið varð frekar stutt þetta árið finnst mér. Þrátt fyrir þá veðurblíðu sem hefur umlukið okkur hérna alveg frá því í maí með smá hléum að vísu. Svavar og María fóru í frí í byrjun júlí og voru í fríi alveg til 17. ágúst síðastliðinn en þá fór María í leikskólann en Svavar byrjaði síðan í skólanum 22. ágúst. María fór á nýja deild sem var opnuð bara núna eftir sumarfrí og er fyrir börn fædd 2004. Nýja deildin heitir Hálsakot en hinar þrjár deildirnar heita: Kátakot, Sælukot og Vinakot. Svavar er nú orðinn skólastrákur og gengur þetta bara vel hjá honum. Skólinn hans heitir Gerðaskóli og er hann annar elsti skólinn á landinu, stofnaður 1872. Svavar var bæði kvíðinn og spenntur í senn að fara að byrja í skólanum. Hann höndlar þetta bara vel og vonandi verður svo áfram :-).

Þetta sumar einkenndist af mikilli vinnu hjá okkur Ara og vissum við vart af því fyrr en sumarið var bara liðið og haustið á næsta leyti en það skríður yfir okkur þessa dagana með sínu rökkri og faðmar mann. Haustkvöldin eru svo falleg hérna í Garðinum, sérstaklega þegar nær að skella á dúnalogn eins og í gærkvöldi. Ahh, þetta er yndislegur tími líka þó sumarið sé hlýtt og bjart.

Það varð eitthvað minna um sumarfrí hjá okkur hjónakornunum eins og var víst síðastliðið sumar líka :-(. Semsagt það er búið að vera brjálað að gera sem er auðvitað gott en þá getur maður kannski farið að standa við skuldbindingar sínar en við komum svolítið þreytt og tætt út úr sumrinu og vonandi getum við tekið okkur eitthvað frí þó ekki væri nema eina og eina helgi. Það er mikil aukning í sölu á vörunum okkar miðað við síðastliðið sumar sem er auðvitað alveg frábært. Einnig hefur aldrei verið jafn mikið að gera í hönnuninni og einmitt núna í ár. Vonandi verður lukkan með okkur áfram hvað verkefni varðar.

Við tókum okkur samt aðeins frí :-). Þann 27. júlí fengum við til okkar fjöldan allan af fólki í gistingu. Þetta voru hann faðir minn, Einar Bjarki, Liv konan hans og börnin þeirra Einar Mar og Ída Eir ásamt tengdamömmu hans Einars sem heitir Gretha. Gretha og Liv voru þetta kvöld að koma frá Noregi en hinir frá Akureyri. Móðir mín og Garðar bróðir ásamt tveimur barna hans þeim Bergvini og Kamillu gistu hjá Þórarni bróður. Daginn eftir þann 28. stóð til að yfirgefa fasta landið og hélt hópurinn allur, ásamt hluta af systkinum föður míns, siglandi með Herjólfi yfir til Vestmannaeyja. Lengra var nú ekki farið frá landinu þetta sumarið :-). Þessi ferð var farin til að fagna því að faðir minn átti sjötugsafmæli þann 30.

Ferðin út í Eyjar var ekki skemmtileg, gífurleg undiralda og slæmt sjóveður enda urðu langflestir farþegar ferjunnar sjóveikir en fólk var þó misveikt og þeir sem tóku sjóveikistöflur og töldu sig bara nokkuð örugga þeir sluppu sko aldeilis ekki. Sjóveikin brá fljótt af flestum en sjóriðan sagði til sín í einhvern tíma á eftir.

Dvölin í Eyjum var aftur á móti yndisleg, frábært veður og útsýnið úr bústöðunum sem pabbi var búinn að leigja var alveg frábært þ.e. þegar við sáum það eftir að þokunni létti daginn eftir komudag. Á þriðjudeginum var afmælinu fagnað þó enn væri dagur í raunverulegt afmæli. Enda notaði pabbi það óspart það kvöldið að hann væri nú aðeins 69. Frábær veisla… grillmatur og meðlæti… ásamt ræðum… lifandi tónlist… afmælissöng… aftur afmælissöng… og nokkrusinnum enn, en litlu frænkurnar komu aftur og aftur og sungu fyrir afa sinn og bræddu auðvitað hjartað hans. Daginn eftir á sjálfan afmælisdaginn var 80 ára hitamet slegið á Stórhöfða sem segir svolítið um það hve gott veður við fengum. Það var gaman að fagna þessum tímamótum á þennan hátt með föður mínum. Mamma og pabbi, takk fyrir frábæra viku í Eyjum. Við fórum heim á fimmtudeginum þegar allir aðrir streymdu til Eyja og yfirgáfum heitasta staðinn enda vorum við spurð af starfsmanni afhverju við værum að fara þar sem Þjóðhátíðin væri nú að byrja. Ferðin heim gekk eins og í sögu alveg sléttur sjór og fallegt sjóveður, svona eins og þetta á að vera. Þar sem ferðin heim var þetta góð er aldrei að vita nema maður skelli sér einhverntíman til Eyja aftur :-).

Föstudeginum eyddi stórfjölskyldan í Nauthólsvíkinni og seinnipartinn var skellt upp annarri afmælisveislu, núna til heiðurs Kamillu litlu sem átti afmæli nokkrum dögum síðar. Þessi dagur var líka fínn í alla staði.

Helgin eftir fór í dagsferðir. Á laugardeginum sýndum við fólkinu Reykjanesið eða þann hluta sem fæstir höfðu komið á. Við skoðuðum m.a. fornmannaleiði og rúnastein, sýninguna Orkuverið jörð, fundum kraftinn og orkuna sem kemur frá virkjuninni, kíktum á Valahnjúk og á Brimketilinn þar sem sagan segir að tröllkona hafi baðað sig. Dagurinn entist allur í þetta og voru allir þreyttir þegar heim var komið. Fólkið gisti allt inni í Reykjavík hjá Þórarni bróður og í orlofsíbúð sem pabbi hafði fengið á leigu. Við Gauksstaðagengið sváfum heima. Sunnudagurinn fór í langferð þar sem ferðinni var heitið að Gullfossi og Geysi en þangað höfðu Einar Mar og Ída aldrei komið. Þvínæst lá leiðin að Seljavallarlaug en komið við fyrst að safninu á Skógum. Þetta er frábært safn… eitt það skemmtilegasta að sækja heim. Farið var hratt yfir og þyrftum við Ari kíkja þangað fljótlega aftur því þarna er heilmargt að sjá. Að Seljavallarlaug komumst við, yndislegt umhverfi… svo magnað eitthvað :-) að vísu rigndi á okkur og þokan hékk í fjallshlíðinni en það gerði staðinn mjög sjarmerandi. Það væri gaman að koma þarna aftur í bjartara veðri líka. Það skelltu sér flest allir í laugina nema við garðálfarnir og móðir mín. Svavar var ekki ánægður með foreldra sína að hafa ekki tekið sundfötin hans með. Eftir þennan dag voru allir ferlega þreyttir og varð ég eiginlega lasin af þreytu um kvöldið.

Mánudagurinn var tekinn mjög rólega framan af degi… slakað á og reynt að ná sér eftir langan ferðadag. Seinnipartinn fórum við inn í Reykjavík þar sem við fórum með stórfjölskyldunni út að borða á Þremur frökkum í boði Grethu. Hún er ekkert smá yndisleg þessi kona :-). Alltaf gaman að eiga stundir með henni. Svavar og María átu næstum yfir sig en þau fengu plokkfisk fyrir börn sem ég mæli hiklaust með. Svavar sagði meira að segja „Hingað vil ég koma aftur“. María át næstum á sig gat og varð ég að bera hana út í bíl þar sem þau sofnuðu strax þessar elskur enda búin að vera mikil keyrsla á þeim dagana á undan.

Þriðjudagurinn var dagur kveðjustundarinnar en Einar Bjarki og fjölskylda hélt af landi brott og kvöddum við þau á flugvellinum. Þetta var mjög skemmtilegur tími sem við áttum með fólkinu mínu og viljum við þakka þeim fyrir skemmtilega samveru. Þegar ég lít til baka núna þá varð úr þessu alveg 9 daga frí. Við tókum líka tvær langar helgar í ágúst þegar við skruppum tvær helgar í röð til Akureyrar. Við tökum okkur vonandi síðan einhverja daga í frí núna í haust allavegana reynum við að gera eitthvað einhverja helgina. Við þá sem lásu þessa löngu færslu allt til enda vil ég segja „þetta er ótrúleg elja hjá ykkur“ Hafið það gott en ég kveð að sinni. Kv.Ág.

Afmæliskveðjur

Jæja þá er það afmæliskveðjupakkinn :-) Hann faðir minn átti stórafmæli þann 30 júlí síðastliðinn og fórum við nánasta fjölskyldan af landi brott þar sem hann bauð okkur í frábært teiti. Segi nánar frá því síðar ;-). Þann 4. ágúst átti Kamilla hans Garðars bróður afmæli, þann 8. ágúst varð Örvar Ernir hennar Sonju 6 ára, Elísabet Anna þeirra Helgu og Rúnars átti afmæli þann 11. Erla móðursystir þann 22. ágúst, Arndís Tómasar vinkona okkar þann 23. Árni Þór þeirra Inga og Röggu þann 26. og Einar bróðir varð fertugur þann 28. ágúst. Í dag eiga frænkur mínar þær Svandís Þóra og Fríða afmæli og á morgun á Sigga frænka afmæli ásamt Huldu sem er sambýliskona tengdapabba. Vonandi gleymdi ég engum í þetta skiptið... viljum við óska öllum þessum afmælisbörnum innilega til hamingju með daginn. Kveðja frá okkur hérna á Gauksstöðum. Ág.