Eins og margir vita þá hefur staðið til að opna hér sölugallerí á vinnustofunni okkar. Þar verður hægt er að koma og sjá hvað við erum að gera. Í galleríinu verðum við einnig með vörur sem eru hvergi annarsstaðar í sölu og eru þetta þá oft hlutir sem við framleiðum í frekar litlu magni eða í efni sem ekki þolir fjöldaframleiðslu. Vegna mikillar vinnu á öðrum vettvangi í vetur og í vor og mikillar eftirspurnar núna í sumar hefur allur okkar tími farið í að framleiða fyrir aðra aðila sem selja vörurnar okkar. Því verðum við að fresta því að opna hérna hjá okkur. Við stefnum þó á að halda formlega opnun núna í ágúst eða byrjun september. Þá verðum við tilbúin að taka á móti gestum sem og stærri hópum. Meira um það síðar. Kv.Ág.
föstudagur, júlí 25, 2008
þriðjudagur, júlí 22, 2008
María fær nýtt rúm og Gunnar nýja íbúð :-)


Tókum smá útréttingatúr í Reykjavík í dag… hluti sem þurfti í kertagerðina og fleira. Í leiðinni komum við í IKEA og keyptum nýtt rúm handa Maríu. Það var kominn tími á nýtt rúm fyrir löngu en hún hefur verið í gamla rimlarúminu frá því hún var mánaðargömul eða svo. Á heimleiðinni kíktum við í heimsókn til Gunnars en hann á afmæli í dag og þau eru ný flutt líka þannig við fengum sýningarrúnt um nýju íbúðina. Hann var bara hress og kátur og bauð okkur meira að segja upp á afmælisköku sem dóttir hans Kolbrún hafði bakað og fært honum. Kolbrún lék við Svavar og Maríu og ég var meira að segja rekin út úr herberginu hennar Kolbrúnar af Maríu þegar ég ætlaði að kíkja á þau, hvað þau væru nú að bralla. Til hamingju með nýju íbúðina kæra fjölskylda, gaman að kíkja á ykkur.
María var að vonum ánægð og mikil tilhlökkun fylgdi því að setja upp nýja rúmið. Bæði María og Svavar fengu að aðstoða við verkið. Á meðfylgjandi myndum má sjá hve spennt og hjálpsöm hún María er. Að fá svona nýtt og stórt rúm fylgir nefnilega svolítið mikið frelsi því nú kemst maður nefnilega sjálfur út úr rúminu án hjálpar. Þetta nýtti María sér óspart í kvöld og ætlaði aldrei að geta sofnað. Kv.Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
Labels: Dagbók
Úr varð yndisleg helgi


Sunnudagurinn og mánudagurinn urðu líka skemmtilegir frídagar en við fengum gesti sem gistu og alles :-). Þetta voru Einar Bjarki bróðir ásamt börnunum sínum Einari Mar og Ídu Eir en þau voru að koma með flugi frá Norge til að dvelja hér smá tíma á Íslandi. Krakkarnir náðu fljótlega vel saman. Svavar og Einar Mar voru strax farnir að bralla ýmislegt saman og sama má segja um þær frænkurnar Maríu og Ídu Eir. Ég gleymdi að taka myndir af frændsystkinunum en læt hér fylgja myndir sem Einar bróðir skildi eftir í tölvunni minni :-). Þegar Norðmennirnir fóru með flugi til Akureyrar seinni partinn í gær varð frekar tómlegt hérna á Gauksstöðum og voru Svavar og María frekar afundin og úrill og tóku hérna þvílíkar rimmur í einhvern tíma á eftir. Alltaf gaman að fá góða gesti :-). Núna er stanslaust spurt af lítilli stúlku og aðeins stærri dreng „ Hvenær förum við til Akureyrar?“ „ Við erum búin að vera svo lengi heima“. Núna í augnablikinu vælir María og vill fara til Akureyrar og ég segi henni að það sé ekki hægt núna þar sem við þurfum að vinna… æji litlu dúllurnar mínar ég vildi ég gæti bara verið í fríi með ykkur :-(. Kv. Ág.
... Ágústa 1 orð í belg
Labels: Dagbók
Helgin byrjaði vel



Það var aldeilis gestagangur um helgina hjá okkur hérna á Gauksstöðum. Upp úr hádegi á laugardeginum kom hluti af fjölskyldunni hans Ara í heimsókn. Þetta voru tengdapabbi og Hulda, Gunnar bróðir hans ásamt Steinunni og dóttur þeirra Kolbrúnu og Kristlaug systir hans ásamt sínum ektamanni, Hjölla og barnabarni þeirra honum Óðni Andra. Það voru grillaðir dýrindis hamborgarar og pylsur hérna úti í garði. Sannkölluð garðveisla þar sem allir nutu veðursins og létu geisla sólarinnar leika um sig. Svavar afi tók smá fótbolta með krökkunum, Kristlaug og Gunnar rifjuðu upp smá takta í golfinu og Kolbrún tók sig til og las fyrir krakkana úti átúni. Svavar og María vildu bara eiga Kolbrúnu held ég og spurðu hvort hún mætti ekki koma daginn eftir líka… góð frænka í þeirra augum. Þau elska það að einhver skuli gefa þeim svona tíma og athygli. Þetta var mjög skemmtileg stund og alltaf er jafn glatt á hjalla þegar þessi hópur hittist… sem er aðeins of sjaldan… mættum alveg eiga oftar svona stundir saman. Við þökkum kærlega fyrir góðan hitting öllsömul :-). Kv.Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
Labels: Dagbók
Afmæliskveðjur
Um daginn eða þann 6. júlí átti Sonja frænka afmæli og þann 10. júlí átti hann Svavar tengdapabbi afmæli, þann 20. júlí átti Ragnar Ólafur hennar Sæunnar 4 ára afmæli og í dag á síðan Gunnar bróðir Ara og æskuvinur hans Guðjón Ingi afmæli. Viljum við óska öllum þessum afmælisbörnum til hamingju með daginn. Kveðja frá okkur garðálfunum. Kv.Ág.
... Ágústa 2 orð í belg
Labels: Afmæliskveðjur
fimmtudagur, júlí 17, 2008
Stiklað á stóru
Hérna kemur smá færsla í dagbókina okkar góðu. Eins og fram hefur komið þá var júní mjög erfiður mánuður hérna á Gauksstöðum fyrir alla. Mikil vinna allan daginn, öll kvöld fram á nótt og flest allar helgar. Þetta var vinna bæði í hönnun og skipulagi vegna 100 ára afmælis Garðs, hönnun og skipulag fyrir Sólseturshátíðina ásamt hönnun fyrir hina ýmsu viðskiptavini. Við meira að segja frestuðum einhverjum verkefnum þar sem við hreinlega komumst ekki yfir allt saman sem þurfti að gera. Því miður sat Lyng á hakanum og höfðum við lítinn tíma til að undirbúa sumarið með því að framleiða vörur inn á lager. Þetta þýðir að nú í dag erum við töluvert bundin við að framleiða vörur því pöntununum rignir hér inn. Það er unnið mikið þessa dagana líka en þó höfum við tekið einn og einn dag frekar rólega.
Við erum þó komin töluvert á veg að undirbúa opnunina á galleríinu okkar hérna en því var rutt aðeins áfram í júní svo við gætum opnað myndlistarsýninguna okkar sem opin var frá 14. Júní – 30. Júní. Frábær tilfinning að þetta sé alveg að hafast :-). Sýningin gekk vel og komu sennilega yfir 350 gestir og sáu sýninguna á meðan hún var opin. Galleríið hefur verið lokað frá júní en verður aftur opnað í bráð þegar sölugalleríið verður opnað formlega. Stefnt er á að opna laugardaginn 26. júní. Nánar um það síðar :-).
Svavar og María fóru í sumarfrí þann 7. júlí síðastliðinn og var föstudagurinn 4. síðasti vinnudagurinn hjá þeim. Strax á föstudeginum var haldið upp á það að fríið væri hafið og var farið og fengið sér ís í Reykjanesbæ. Á laugardeginum fórum við inn í Reykjavík þar sem við fórum, eins og Ari var búinn að segja ykkur frá hér fyrr, í húsdýragarðinn með Þórarni og Kristínu. Á mánudeginum fórum við síðan í dagsferð á Snæfellsnesið þar sem við fengum líka þetta dúndur veður 22 stiga hita og næstum því logn. Við fórum í Djúpalónsfjöruna en þangað er dýrlegt að koma… svo mikil orka þarna… sem gott er að sækja. Þar blés nú samt töluvert á okkur þannig við þurftum að dúða okkur og klæða af okkur veðrið. Þetta var mjög skemmtilegur dagur sem allir nutu í botn. Þriðjudagurinn var síðan dagur útréttinganna og var farið í Reykjavík og ýmislegt efni í vörur sótt. Auðvitað var komið við í dótabúð fyrir krakkana þar sem þau voru dugleg að flengjast þetta með okkur. Annars þurfa þau ekkert dót þar sem nóg er til af því hérna heima. Við tóku síðan vinnudagar sem þó hafa sumir hverjir breyst í mikla skemmtun fyrir krakkana þar sem þau hafa fengið aðra krakka í heimsókn og sótt þau sömu líka heim. Þetta eru James Robert, Ástþór Helgi og Valdimar Steinn.
Nú er fimmtudagsmorgun og veðrið virðist ætla að verða yndislegt eins og í gær. Undangengnir eru nokkrir rigningadagar sem voru kærkomnir fyrir gróðurinn sem var alveg að skrælna hérna… túnið er meira að segja að verða grænt aftur eftir sláttinn. Túnin á Gauksstöðum voru nefnilega slegin 29. júní og hirt þann 30. Sprettan var einhverju minni en árið áður en um 28 rúllur fengust af túninu núna. Það er svo gaman þegar túnin hafa verið slegin… svo snyrtileg og falleg :-). Veðrið í júní var frábært nema auðvitað frá föstudeginum 27. (frá níu um kvöldið eða um leið og tónleikarnir hófust sem var fyrsta atriðið tengt hátíðinni) og fram yfir helgina sem Sólseturshátíðin stóð… grrrrr… háfaða rok og kaldur vindurinn. Spáin virðist vera góð næstu dagana eða alla vegana fram yfir næstu helgi. Svo nú er að njóta þess :-). Hafið það gott! Kv.Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
Labels: Dagbók
þriðjudagur, júlí 15, 2008
Húsdýragarðurinn heimsóttur
Jæja, við skelltum okkur í Húsdýragarðinn með Svavari og Maríu í byrjun mánaðarins. Þau áttu það svo sannarlega skilið eftir þá vinnutörn sem var að baki. Eins og sést þá nutu þau sín í botn og ekki skemmdi það fyrir að Kristín frænka var með í för ásamt pabba sínum. Takið eftir myndinni þar sem Svavar er að hvísla að systur sinni. Hann var búinn að suða svo mikið í okkur að fara í rafmagnsbílana, þarna var hann að biðja Maríu að taka við.
... Ari 0 orð í belg
Labels: Dagbók
laugardagur, júlí 12, 2008
Snilldarbandið Hjaltalín

Já, það er langt síðan við blogguðum síðast, við vorum bara að jafna okkur eftir Sólseturshátíðina sem var haldin í lok júní. Eins og þeir sem þekkja okkur vita þá tókum við að okkur að skipuleggja og sjá um framkvæmd á hátíðinni þetta árið og það varð dálítil törn að láta það ganga upp en það tókst vel og var bara þrælskemmtilegt allt saman. Hluti af dagskránni voru tónleikar á föstudagskvöldinu 27. júní með hljómsveitinni Hjaltalín. Það urðu alveg yndislegir tónleikar. Eftir að dúettinn Songbird var búinn að hita upp þá stigu þau á svið og skemmtu okkur með sinni frábæru spilamennsku og söng. Þau eru alveg mögnuð skal ég segja ykkur og eiga eftir að ná langt. Þetta band hefur algjöra sérstöðu, maður hefur ekki heyrt neitt þeim líkt, aldrei.
... Ari 0 orð í belg