sunnudagur, júní 22, 2008

Að njóta góða veðursins





Framan af deginum í gær og fyrrakvöldið einkenndist af stressi í okkur hjónunum. Þessi Sólseturshátíð og allar þessar hátíðir hérna í Garðinum eru farnar að taka sinn toll hjá okkur. Það er erfitt að standa í skipulagningu og mikilli vinnu í svona langan tíma. Svo þegar hlutirnir ætla sér ekki alveg að ganga upp þá verður þetta frekar erfitt allt saman. Þetta á samt allt eftir að blessast og stefnir bara í skemmtilega og áhugaverða Sólseturshátíð um næstu helgi þ.e. 27. Til 29. júní. Bara að drífa sig með tjaldið eða fellhýsið í sveitina um næstu helgi og taka þátt í þessu með okkur :-).

Í gær var sýningin okkar opin frá 14 – 17 og þannig verður það líka í dag. Þar sem við vorum með opið í gær urðum við að vera hérna úti á vinnustofu. Við notuðum því tækifærið og böðuðum okkur í sólinni hérna úti, snyrtum aðeins umhverfið, hnýttum nokkur men og nutum samveru vina okkar. Hildur Gylfa vinkona okkar kom hérna í heimsókn ásamt dóttur sinni Elmu. Þær böðuðu sig í sólinni með okkur, borðuðu „arapönnsur“ og nutu sveitarinnar. Robert pabbi hans James, besta vinar Svavars, kom líka og stoppaði í góða stund þegar hann sótti James en hann var hérna allan daginn í gær með Svavari… þeir eru svo góðir félagar. Alex Breki birtist hérna líka úti og lék við þá. María og Elma náðu bara vel saman og léku sér hérna á túninu m.a. og hurfu inn í grasið og blómin eins og einhverjir blómálfar.

Gærkvöldið einkenndist svo af skipulagi og vinnu… þetta tekur engan enda. Nú er bara rétt um vika þar til hátíðin er um Garð gengin og þá er hægt að fara að einbeita sér meira að Lyng og vörunum okkar, ásamt því að sinna okkur sjálfum og börnunum. Ég get vart beðið eftir því að þessi „heavy“ mánuður verði liðinn.

Dagurinn í dag virðist ætla að einkennast af veðurblíðu eins og dagurinn í gær. Þannig þið sem hafið tök á því… njótið dagsins :-). Það ætla ég allavegana að reyna. Kv.Ág

laugardagur, júní 21, 2008

17. júní




Hátíðarhöldin á 17. júní gengu bara mjög vel hérna í Garðinum og var þátttakan virkilega góð. Eftir að hátíðarhöldunum lauk skelltum við Ari okkur inn í Hafnarfjörð með Svavar og Maríu. Við áttum stefnumót við Þórarinn, Olgu og Kristínu á Víkingahátíðinni. Við Ari höfum reynt að kíkja alltaf á þessa hátíð en vegna anna þessa dagana þá urðum við að skjóta þessu svona inn á milli hjá okkur. Það var frábært að hitta liðið úr Úthlíðinni... allt of langt síðan síðast.

Krakkarnir náðu að nýta tímann og leika sér saman m.a. í feluleik. Við keyptum okkur smá snarl, skoðuðum hátíðina og nutum veðurblíðunnar. Andrúmsloftið var mjög slakandi, færeyingar syngjandi söngva, maður að spila á hljóðfæri, svona einhverskonar gítar en samt ekki… veit ekki hverslags hljóðfæri þetta var, annar að spila á flautu úr beini, við og við heyrðist hávær „fuglasöngur“ sem barst úr litlum leirfuglum sem fylltir eru af vatni og blásið í og þá myndast hljóð sem er eins og fuglasöngur. Kona í tjaldi syngur „…mitt er þitt og þitt er mitt, þú veist hvað ég meina…“ - svo fallega sungið með lágstemmdri röddu. Eins og vanalega bar marga skemmtilega og fallega hluti fyrir augu okkar… alltaf gaman að kíkja á víkingana. Stoppið var nú ekki mjög langt í Hafnarfirði og kominn tími til að halda til baka í Garðinn þar sem á morgun var vinna og leikskóli. Kv.Ág.

þriðjudagur, júní 17, 2008

Fallega fjaran okkar





Við skruppum eitt kvöldið hérna útí fjöru við vitana þar sem veðrið var svo gott, hægur andvari og hlýtt. Þetta er alveg yndislegur staður. Hvít skeljasandsfjaran er orðin svo hrein og fín eftir að Blái herinn hans Tómasar Knúts er búinn að hreinsa hana af öllu drasli með dyggri aðstoð bæjarstarfsmanna og sjálfboðaliðanna úr SEEDS samtökunum. Það væri hægt að stunda þarna sjóböð svei mér þá. Það er aldrei að vita nema maður prófi að skella sér úti einhverntíman þegar gott er veður.

mánudagur, júní 16, 2008

Myndablogg: OPNUNARHELGIN








Margir sóttu okkur heim um helgina

Margt var um manninn á Gauksstöðum alla helgina en sýningin okkar var opnuð kl. 16 á laugardeginum hérna í vinnustofunni okkar. Opnunin var vel sótt og dreif fólk að jafnt og þétt alveg fram yfir kl.19 þó sýningin hefði einungis átt að vera opin í tvo tíma. Á sunnudeginum var síðan opið eftir hátíðarhöldin í íþróttahúsinu eða frá kl. 16 til 20. Þetta var mjög skemmtileg helgi í alla staði og gaman að taka á móti öllu þessu fólki sem sýndi okkur mikinn áhuga og því sem við erum að gera. Ég gæti trúað því að fjöldi gesta hafi jafnvel farið yfir 300 þessa helgina. Gaman af þessu :-).

Við höfðum ekki pössun fyrir krakkana frekar en fyrri daginn þannig þau Svavar og María flengdust þetta með okkur alla helgina. Þau stóðu sig eins og hetjur bæði tvö, svo stillt og kurteis. Mest allan tímann léku þau sér hér fyrir utan við að moka sandi í fötur og þessháttar… ég er svo stolt af þessum elskum :-). Eins og þau eru búin að vera dugleg og þolinmóð við okkur á meðan þessi vinnutörn hefur staðið yfir. Ég finn samt að þau eru alveg að fara að fá nóg af þessari stöðugu vinnu í okkur Ara, alla daga, öll kvöld og flest allar helgar undanfarið. Því miður verður sviðað uppi á teningnum næstu tvær vikurnar þar sem undirbúningurinn fyrir Sólseturshátíðina í Garði stendur sem hæst þessa dagana ásamt því að við þurfum að vera dugleg að vinna vörur fyrir Lyng þannig við getum afgreitt þær pantanir sem koma inn á borð. Það eru þrjár vikur í sumarfrí hjá þeim og þá ætlum við að fara að reyna að slaka aðeins á og taka okkur einhverja frídaga og sinna krökkunum og okkur sjálfum.

Á morgun er 17. júní og ég verð að vinna við hátíðarhöldin í íþróttahúsinu, Ari ætlar að fara þangað með krakkana að sjá skemmtiatriðin og þessháttar. Það er ekki hægt að taka það frá þeim að fá að taka þátt í hátíðarhöldunum á þjóðhátíðardeginum þannig sýningin okkar verður ekki opin á morgun þó allar aðrar sýningar hérna verði opnar. Aftur á móti verður opið hjá okkur eins og hinum bæði á laugardaginn næsta og sunnudag frá kl. 14 til 17. Þið sem ekki hafið séð sýninguna okkar, endilega að drífa sig í smá bíltúr í sveitina :-). Kv.Ág.

sunnudagur, júní 15, 2008

Til hamingju með daginn Garðbúar!

Nú er þessi yndislegi hátíðardagur að kveldi kominn. Dagurinn byrjaði snemma, Ari lagði síðustu hönd á heiðursborgara-vegginn á bæjarskrifstofunum fyrir níu í morgun en lágmyndirnar af heiðursborgurum Garðs voru afhjúpaðar þar síðan um klukkan 10. Síðan tók við lokaspretturinn að undirbúninginum í íþróttamiðstöðinni þar sem hátíðardagskráin var síðar í dag. Ari var að aðstoða við að koma upp hljóðkerfinu og redda því sem þurfti að redda svo hátíðin gæti byrjað. Hann var þar alveg til að verða 14 þegar hátíðardagskráin byrjaði. Ég, Svavar og María fórum og sáum þegar listaverkið Skynjun var afhjúpað við hátíðlega og fallega athöfn um 11 leitið í morgun, Það voru tvær gamlar sjómannskonur sem afhjúpuðu verkið sem var vel við hæfi þar sem verkið á að tákna og standa fyrir þær konur í Garðinum sem í gegnum tíðina hafa beðið heima eftir að mennirnir, synirnir og bræðurnir skiluðu sér heim aftur af sjónum. Mjög táknrænt verk og skemmtilegt. Við afhjúpinina drógu þessar konur niður band sem bundið var utan um léttan dúk sem vafinn var utan um sex metra háa konuna. Þetta var alveg frábær gjörningur þar sem búið var að koma verkinu svo fallega fyrir þarna í móunum, kríurnar svimuðu yfir og steyptu sér gargandi niður að hópnum sem safnast hafði saman við þessa athöfn... þær tóku þátt í þessu með okkur... síðan þegar böndin voru dregin niður fór þessi þunni, létti dúkur að flakta í vindinum og líktist slæðu sem liðaðist um líkama konunnar og á síðasta augnablikinu lá „slæðan“ eingöngu fyrir andliti konunnar þar sem hún dróst hægt og svo mjúklega frá vitum hennar... oh, þetta heppnaðist fullkomlega... svo fallegt! Við Ari skiptum síðan liði og var hann með krakkana á meðan ég fór á hátíðardagskrána klukkan 14. Þetta var mjög skemmtileg dagskrá sem rann ljúft yfir. Ég er bara mjög ánægð með hve vel heppnaðist allur tónlistarflutningurinn og tónverkið hans Áka sem flutt var og vakti misjöfn viðbröð fannst mér vera áhugavert listform. Þetta var svona nútíma tónverk flutt af blásturshljóðfærum og tölvu og á tjaldi að baki tónlistarmönnunum var varpað texta. Í byrjun fannst mér ég vera að hlusta á lúðrasveit vera að stilla hljóðfærin sín; stakir og einmana tónar ómuðu og virtust ekki eiga samleið með öðrum... smám saman fór nú samt ýmislegt að gerast og tónarnir sem tölvan gaf frá sér urðu mjög áhugavert ískur.Málið er að það sem tölvan flytur er ekki fyrirfram unnið heldur vinnur hún jafnóðum úr því sem hljóðfæraleikararnir leika. Ekki það að ég „fíli“ tónverkið sem slíkt þá fannst mér það samt áhugavert og líkjast meira gjörningi. Þetta var áhugaverð og skemmtileg upplifun. Vinkona mín sem var þarna líka líkti þessu við það að hlusta á náttúruna; á vindinn... ískur í glugga eða einhverju slíku... svona eins og að sitja og hlusta á brjálað veður sem lemur húsið að utan. Miðað við þessa lýsingu ætti nú karli föður mínum að líka verkið en hann elskar nefnilega að sitja inni og hlusta á snjóstorminn úti. Eftir að hátíðardagskránni lauk um 4 dreif ég mig heim og nú var komið að því að opna sýninguna aftur en allar sýningarnar voru opnar frá 16 til 20. Þetta var mjög áhugaverð og skemmtileg helgi fyrir garðbúa og gesti þeirra og vil ég óska garðbúum öllum innilega til hamingju með daginn í dag sem var svo hátíðlegur og skemmtilegur í alla staði. Takk fyrir mig :-) Kv.Ág.

laugardagur, júní 14, 2008

Myndlistasýning á Gauksstöðum

Þér er hér með boðið á opnun samsýningar okkar í vinnustofunni okkar hérna á Gauksstöðum en opnunin er kl. 16:00 í dag. Sýningin er opin í dag til kl. 18:00 og svo aftur á morgun frá c.a. 16:00 til 20:00. Sýningin er haldin af tilefni 100 ára afmæli Sveitarfélagsins Garðs en einar fimm aðrar sýningar verða opnaðar líka í dag hérna í Garðinum. Svo endilega lítið við, upplagt að fá sér smá bíltúr í sveitina í góða veðrinu.

Dagskrá 100 ára afmælisins má finna á vef Sveitarfélagsins.

Kv. Ágústa og Ari

laugardagur, júní 07, 2008

Góðir gestir í Garði

Á dögunum komu 16 sjálfboðaliðar frá SEEDS samtökunum í Garðinn en þau hafa unnið að því að aðstoða við undirbúning fyrir 100 ára afmæli bæjarins. Þau hafa verið að hjálpa okkur að taka hér til og gera fallegt í umhverfinu okkar og allt er þetta gert í sjálfboðavinnu. Þetta unga fólk er alveg yndislegt svo vinalegt og kurteist. Það væri óskandi að heimurinn væri svona… þar sem hjálpast er að án þess að krefjast greiðslu fyrir það. Í dag er það þannig að fólk hefur ekki lengur tíma eða vilja til að hjálpa náunganum og ef „hjálpin“ berst þá er yfirleitt einhvers krafist á móti. Þó eru til undantekningar á þessu og enn eru til gæðablóð í þessum heimi… sem betur fer… annars værum við glötuð.

Þessi samtök eru alveg frábær og vildi ég að ég hefði kynnst einhverju slíku þegar ég var unglingur. Þau vinna svo þakklátt starf og engum háð. Lesa má um samtökin á heimasíðunni þeirra: www.seedsiceland.org.

Í gær buðu SEEDS-krakkarnir Garðbúum upp á smakk af þjóðarréttum sjálfboðaliðanna en þau koma frá sjö löndum. Þetta var haldið hér í Samkomuhúsinu okkar hérna í Garðinum og var alveg bráðskemmtilegt að rölta yfir til þeirra og fá að taka þátt í þessu með þeim. Svavar og María nutu sín líka í botn enda voru þarna fyrir Ástþór Helgi og Valdimar úr leikskólanum… það var mikið fjör hjá rollingunum en þau léku sér mestan tímann fyrir utan samkomuhúsið.

Í dag fór Særún með þau í ferð um Reykjanesið og enduðu þau ferðina í vinnustofunni - galleríinu okkar hérna á Gauksstöðum. Þetta var mjög gaman og sýndum við þeim hvað við erum að gera og sögðum þeim aðeins frá okkur. Alltaf gaman að fá góða gesti í heimsókn. Þetta er reyndar þriðji hópurinn sem kemur til okkar. Fyrstir komu hópur nemenda í gullsmíði við Iðnskólann (10 manns), svo komu leiðsögumenn Reykjaness (9 manns) og núna SEEDS-hópurinn (16 manns).

Þá læt ég þetta nægja í dag og vona að fólk hafi notið veðursins í dag en hérna hjá okkur er nefnilega búið að rigna reiðinnar ósköp ásamt því að bæði kaldur og napur vindurinn hefur farið hér mjög hratt yfir í dag. Kv.Ág.

föstudagur, júní 06, 2008

Annir vikunnar

Nú er enn aftur komið föstudagskvöld… vá hvað tíminn líður hratt þessa dagana. Þessir dagar eru yndislegir, svo bjartir, stilltir, svo fallegt og gott veður og það er svo bjart fram eftir öllu. Nú er klukkan rétt farin að ganga tólf og sólin er ekki ennþá sest. Ef þið hugleiðið það aðeins þá eru ekki nema 15 dagar í lengsta dag ársins en sumarsólstöður eru þann 21. júní. Eftir það fer dagurinn að styttast aftur… sumarið er í raun alltof stutt hérna hjá okkur frónbúum. Ekki það að ég kvíði haustinu því ég elska haustið, það hefur verið minn uppáhaldstími í gegnum tíðina.

Vikan er búin að vera frekar strembin og höfum við unnið alla daga og langt fram eftir öllu… frekar langir dagar… frekar þreytt hjón :-). Undirbúningurinn fyrir 100 ára afmæli Sveitarfélagsins Garðs, sem er um næstu helgi, er núna í hámarki og þarf að hnýta alla enda í næstu viku og klára að setja upp afmælishátíðina :-). Einnig er verið að klára undirbúninginn fyrir 17. júní hátíðarhöldin sem auðvitað verða haldin hátíðleg hér í bæ og verður aðal áherslan á börnin. Einnig er undirbúningurinn fyrir okkar yndislegu Sólseturshátíð sem verður haldin í lok mánaðarins eða 27. – 29. júní á fullu líka. Semsagt margt að gerast hjá Garðbúum þennan mánuðinn. Hellingur að gera í hönnuninni líka og höfum við ekki einu sinni komist yfir allt sem þarf að gera þar. Við erum búin að fresta nokkrum verkum alveg fram í júlí þar sem við hreinlega höfum ekki haft tíma til að sinna öllu vegna anna. Fullt að gera í framleiðslunni á vörunum okkar hjá Lyng líka, hefðum þurft að vera kominn með góðan lager núna… en það er víst ekki hægt að gera meira… það eru jú aðeins 24 tímar í sólarhringnum. Að vísu græðir maður ótrúlega mikinn tíma ef maður bara sleppir sjónvarpinu… þetta er svo mikill tímaþjófur :-(. Svo er auðvitað framundan líka að opna galleríið okkar í einhverri lítilli mynd til að byrja með auk þess sem við Ari verðum með myndlistarsýningu hérna í vinnustofunni okkar þann 14. júní í tengslum við afmælishátíðina um næstu helgi auk þess sem við erum að hjálpa Ásgeiri á Byggðasafninu við að setja upp ljósmyndasýningu fyrir sama tilefni. Semsagt í nógu að snúast þessa dagana og er óhætt að segja að við Ari látum okkur ekki leiðast frekar en fyrri daginn. Það er svo gott að vera lifandi :-) Kv.Ág.

fimmtudagur, júní 05, 2008

Flækingur í Garðinum

Eins og ég nefndi í blogginu okkar hér í lok maí þá kom til okkar kona og tók útvarpsviðtal við okkur en það var flutt í útvarpsþættinum Flækingnum í dag kl. 16:13. Því miður gafst okkur ekki tími til að láta fólk vita af þessu en fyrir þá sem ekki heyrðu viðtalið og langar að hlusta á rausið í okkur Ara þá er hægt að hlusta á upptökur þáttarins á heimasíðu RÚV.Kv.Ág.