miðvikudagur, maí 28, 2008

Sumargleði

Tíminn líður óðfluga, maí er við það að verða búinn og júní er hérna rétt handan við hornið. Sumarið er komið, það finnur maður svo vel á dögum eins og þessum í dag… alveg yndislegt veður með ilmi af sumri… oh svo notalegt :-). Þegar ég fór og sótti Maríu í leikskólann seinnipartinn í dag og þegar við gengum niður veginn að Gauksstöðum þá var svo fallegt heim að horfa; Túnin fagurgræn, þvotturinn blakti á snúrunum og vegkanturinn var heiðgulur af fíflum… þetta var eitthvað svo mikil sveit. Ég elska sveitina okkar.

Svavar er ennþá lasinn með hita og hálsbólgu. Vonandi fer hann að ná sér og við krossum fingurna hérna að enginn annar leggist. Við meigum eiginlega ekki við meiri veikindum því við Ari erum hlaðin verkefnum og alltaf bætist við verkefnalistann okkar. Það er erfitt að segja nei þegar maður þarf á tekjunum að halda. Eins og ég nefndi áðan þá er júní alveg á næsta leyti og við keppumst við að klára það sem klára þarf fyrir mánaðarmótin en það þýðir að við erum búin að vera að vinnu öll kvöld líka. Júní á einnig eftir að vera frekar hlaðinn og vildi ég óska þess að við Ari gætum klónað okkur því ekki veitti okkur af aukahöndum hérna. Ekki nóg með að hönnunarverkefni bíði okkar heldur erum við líka starfsmenn tveggja nefnda hérna í bænum, annarsvegar vegna Sólseturshátíðarinnar hérna í Garðinum sem verður 27. – 29. júní í sumar og hins vegar 100 ára nefndar Sveitarfélagsins en bæjarfélagið okkar verður hundrað ára núna 15. júní. Ekki má heldur gleyma minjagripunum en núna er allt farið á fullt og pantanir streyma hérna reglulega inn. Gaman af þessu :-) Vona samt að við klárum ekki alveg út af „rafgeymunum“ okkar. Auk þessa alls þá erum við í dágóðan tíma (c.a. 1 ár) búin að ætla að opna litla galleríið okkar hérna í vinnustofunni úti og er þetta alveg að hafast, við þurfum bara að taka góða törn í að þrífa betur þarna úti og snyrta aðeins umhverfið hérna við húsin hjá okkur svo fólki sé bjóðandi hérna heim í hlað. Semsagt okkur Ara leiðist ekki þessa dagana frekar en áður, spurning samt hvort krökkunum fer ekki að leiðast það hve upptekin við erum alltaf. Það væri betra ef við gætum sinnt þeim aðeins meira þessa dagana… stundum vilja þau leika við einhvern annan en bara hvort við annað… stundum líka við mömmu og pabba. Við stefnum samt á að taka okkur svolítið frí með krökkunum í júlí og kannski eitthvað í ágúst líka.

Jæja, núna er alveg að koma miðnætti, enn er bjart úti og veðrið er alveg yndislegt. Hægur vindur SSA 2.8 m/sek og hiti um 11°C. Nú er kominn háttatími og tími til kominn að fara að hlaða batteríin. Ég ætla samt að bregða mér hérna aðeins útfyrir og anda að mér fersku lofti og njóta pínu augnabliksins á meðan ég tek inn þvottinn. Rölti kannski hérna aðeins niður að sjónum áður en ég hátta og hverf inn í draumaheiminn… hafið það gott og góða nótt! Kv.Ág.

mánudagur, maí 26, 2008

Öðruvísi dagur

Dagurinn í dag einnkennist af fundum og viðtölum. Núna í morgun kom til okkar kona, hún Elín Lilja Jónasdóttir og tók við okkur útvarpsviðtal en hún sér um þáttinn Flækinginn á Rás 1 í sumar ásamt Guðmundi Gunnarssyni. Eins og segir á heimasíðu Rúv þá er þátturinn á dagskrá á Rás 1 á hverjum virkum degi í sumar, á milli 16:13 og 17:00. „Flakkað er um landið og í hverjum þætti er tekinn fyrir ákveðinn staður, þorp eða eyja. Rætt er við fólkið sem þar býr til þess að draga upp eins konar mannlífsmynd af staðnum. Flækingur leitar að hvunndagshetjum á öllum aldri sem ekki er venjulega í forsvari fyrir sína heimabyggð. Við förum með viðmælendum okkar í vinnuna, út á sjó eða sækjum þá heim“. Hún Elín var mjög viðkunnanleg og skemmtileg kona og var reglulega gaman að spjalla við hana. Við vitum ekki ennþá hvenær viðtalið við okkur verður flutt en þættirnir byrja núna 2. júní.

Í dag bíða okkar Ara einir þrír fundir. Við verðum að vísu að skipta þeim á milli okkar því hann Svavar okkar er lasinn í dag, með hálsbólgu og hita :-(. Hann er sjaldan svona slappur skinnið litla. Hann var nú ekki til stórræðanna í morgun þannig hún María okkar var send í leikskólann þar sem við reiknuðum ekki með því að þau gætu haft ofan af fyrir hvoru öðru hérna heima í dag. Við Ari reynum auðvitað að sinna vinnunni eftir bestu getu þó við þurfum að hafa ofan af fyrir stráknum en við erum sem betur fer með þau forréttindi að vinna heima hjá okkur þannig við þurfum ekki að taka okkur frí. María sagðist nú vilja vera heima í dag og sofa eins og Svavar… æji, mig langaði nú ekkert að vera að senda hana burt… það kom mér samt á óvart hvað hún María var samt dugleg að fara í leikskólann í morgun, við gengum hér syngjandi út úr húsi… þó aðalega hún María, litli söngfuglinn, auðvitað. Vonandi gengur þessi pest fljótt yfir hérna á þessu heimili. Kv.Ág.

Sunnudagur

Dagurinn í gær var fínn, fram eftir morgni dunduðum ég, Ari, Svavar og María okkur hérna heima við leik, tölvuleik og fleira. Við gleymdum okkur meira að segja og alltíeinu var klukkan bara langt gengin í ellefu og kominn tími á fótboltaæfingu. Nú var að hafa hraðar hendur, klæða sig (vorum ekki búin að því :-), greiða og fleira svo hægt væri að láta sjá sig úti. Í tilefni af degi barnsins sem var á sunnudaginn þá var haldinn sögustund og sungin lög hérna uppi á bæjarskrifstofum. Ég og María fórum þangað á meðan Ari fór með Svavar á fótboltaæfingu. Þetta var mjög notaleg stund sem við áttum þarna; Oddný bæjarstjóri las tvær sögur og krakkarnir sungu við undirleik frá Júlíu leikskólakennara á gítar og aldraður frændi hennar spilaði á fiðlu. Þetta var ferlega gaman. Það var líka gaman að fá að hitta fjölskylduna hennar Júlíu frá Kólimbíu. Þetta voru mamma hennar, pabbi, systir, frændi og frænka sem öll eru hér þessa dagana í heimsókn hjá henni.

Svavar dró James Robert með sér heim eftir fótboltaæfingu en hann er besti vinurinn hans Svavars. Þeir léku sér hér inni og úti frá 12:00 til 17:00. Pabbi hans og eldri bróðir kíktu líka í kaffi þegar James var sóttur. Þeir eru allir frá Nýja Sjálandi en móðir hans James er íslensk, James flutti til Íslands þegar hann var á öðru ári. Þeir Svavar og James ná rosalega vel saman, mjög góðir vinir þarna á ferð :-). Á meðan þeir félagarnir léku sér var María aðalega með Birnu og Heru. Við Ari vorum nær allan daginn í gær hérna úti á vinnustofu við að undirbúa gangsetninguna á galleríinu okkar sem við erum að reyna að opna núna í júní. Ari keyrði síðan Birnu og Heru heim til sín seint í gær. Alltaf gaman að hafa þær stelpurnar. Kv.Ág.

laugardagur, maí 24, 2008

Vikurnar líða hratt

Síðastliðin vika var náttúrulega geðveiki. Helgin var bara vinna og aftur vinna, frameftir öllu. Ekki mikið um frí eða skemmtun. Held að Svavar og María hafi nú ekki verið neitt sérstaklega ánægð með okkur þessa helgina. Annars eru þau alltaf dugleg þessar elskur.

Við höfðum ætlað okkur norður til Akureyrar þarna á fimmtudeginum 15. maí en vegna pantana hjá Lyng og verkefnum sem komu inn á borð hjá Hennar hátign, með litlum fyrirvara - verkefni sem þurfti að redda strax, þá urðum við að fresta för okkar norður. Leiðinlegt þar sem Svavari og Maríu var búið að hlakka gífurlega mikið til að heimsækja afa og ömmu í Jörvabyggð. Það verður bara að bíða betri tíma eins og vanalega. Ykkur að segja þá er þetta nú ekki í fyrsta skiptið sem við sláum af ferð norður… þetta er varla fyndið… samt er þetta brandari sem er farinn að ganga hjá fjölskyldunni. Þetta kemur engum lengur á óvart… liðið á Gauksstöðum er alltaf svo bissí.

Vikan var frekar erfið og stressandi líka… þannig að nú þegar ný helgi gengur í garð þá erum við Ari frekar púnkteruð (eins og sagt er fyrir norðan :-). Það þýðir samt ekki að sitja heima að lesa því verkefni helgarinnar eru alltof mörg og efast ég um að við komumst yfir þau öll. Auðvitað ætlum við okkur að slaka eitthvað á líka. Í morgun byrjuðum við á helgarhreingerningunni sem aldrei var framkvæmd um síðustu helgi, það er tildæmis mjög slakandi og hugarhreinsandi líka :-). Við fengum kærkomna gesti í dag, Svavar tengdapabba og hana Huldu sem kipptu Birnu og Heru með sér úr Reykjavík. Það var fínt að þurfa ekki að skutlast eftir stelpunum. Þær verða hérna í dag hjá okkur en stoppa bara stutt núna yfir helgina. Þær eru búnar í prófunum og stóðu sig bara vel. Til hamingju með þetta stelpur! Þær byrja síðan í sumarvinnunni núna í júní.

Fyrrihluta vikunnar var útskriftarferð hjá skólahópnum á Gefnarborg. Svavar er einn af sextán krökkum sem eru að byrja í Gerðaskóla í haust en það er óvenjulega lítill hópur þar sem undanfarin ár hafa krakkarnir verið um þrjátíu í tveimur bekkjum. Útskriftarferðin heppnaðist mjög vel. Þau fóru í Kölku og sáu hvernig ruslið er endurunnið, fóru í heimsókn í nýjan leikskóla á Háskólavöllum, borðuðu á KFC, fóru á hestbak og enduðu síðan í veislu á Gefnarborg… Svavar var mjög ánæðgður og kátur með þetta allt og jafnframt mjög þreyttur um kvöldið :-).

Í kvöld er júróvisionkvöld og stefnir fjölskyldan á að hafa hérna lítið júróvisionpartý og krakkarnir eru með það alveg á hreinu að þau vilja fá eitthvað góðgæti líka; súkkulaðiís, snakk, popp og nammi var þeirra tillaga :-). Hafið það sem allra best og áfram Ísland! Kv.Ág.

laugardagur, maí 17, 2008

Sprækir kettlingar á Gauksstöðum

video

Myndablogg: ÚTI AÐ LEIKA




Í veðurblíðunni




Veðrið hefur leikið við okkur Garðbúa undanfarna daga sem og aðra landsmenn að mér skilst. Svavar og María eru búin að leika sér öllum stundum úti bæði hér heima og þó sérstaklega í leikskólanum en þar hafa krakkarnir á bestu dögunum vart komið inn nema til að borða og þessháttar. Það hefur þó náð að rigna eina tvo daga sem reddar gróðrinum gjörsamlega og er grassprettan á túninu okkar komin á fullt. Grasið er farið að skríða og mynda frjókorn sem eru ekki gleðifregnir fyrir þá sem eru með frjóofnæmi eins og hann Ara minn og hana Birnu okkar. Við höfum blessunarlega verið laus (sjö, níu, þrettán!) við fuglaflónna þetta vorið sennilega afþví guli strætóinn (hann Golíat okkar) er ennþá týndur en hann var vanur að bjóða flónum heim til að bíta húsfreyjuna á Gauksstöðum en það hefur fregnast hve girnileg hún er ;-).

Svavar fór í vorskólann í Gerðaskóla í tvo daga í síðustu viku og tvo tíma í senn. Þessir dagar eiga að auðvelda verðandi 1. bekkingum að aðlagast skólalífinu og koma í veg fyrir kvíða fyrir komandi skólagöngu. Þetta var mjög spennandi fyrir hann Svavar okkar og líkaði honum bara vel í skólanum. Hann spurði okkur meira að segja hvenær skólinn myndi síðan byrja… við sögðum næsta haust… þá sagði hann „ég vil að hann byrji strax“. Vonandi að þetta sé merki um hvað verða vill næsta haust.

Undanfarna daga höfum við Ari ekki getað notið veðursins sem skildi sökum anna. Ekki það að við séum að kvarta yfir þeim verkefnum sem við höfum á borðinu… það er bara þannig að íslenska sumarið er svo stutt að mann langar helst að henda frá sér öllu þegar veðrið er þetta gott. Það bara gengur auðvitað ekki og það líðst ekkert kæruleysi þessa dagana. Við höfum verið að vinna fram eftir kvöldi undanfarið og meira að segja vaknaði Ari upp fyrir allar aldir í dag og byrjaði að vinna. Þegar ég vaknaði rétt fyrir sjö í morgun var Ari löngu kominn á fætur. Sennilega hefur hinn fagri fuglasöngur vakið hann þennan morguninn eins og mig.

Vonandi verður áframhald á þessu yndislega veðri, gaman að finna hvað sumarið er að sveipa allt gleðibirtu þessa dagana. Njótið veðurblíðunnar ef hún endist. Kv.Ág.

Afmæliskveðjur

Þórarinn Friðrik Gylfason vinur okkar átti afmæli þann 13. maí síðastliðinn og Ida Eir dóttir Einars bróðurs átti afmæli þann 15. maí. Við viljum óska afmælisbörnunum innilega til hamingju. Afmæliskveðjur frá okkur á Gauksstöðum. Kv.Ág.

mánudagur, maí 12, 2008

FTCH Tasco Rouble of Bedgebrook


Þetta er alveg geggjaður hundur. Hann er meistari í Bretlandi og þykir afspyrnu góður. Liturinn er ekki til að skemma fyrir þó að hann skipti svo sem ekki máli. Þetta kallast á ensku Fox red, gæti heitið Ref rauður á því ylhýra. Þetta telst reyndar vera gulur litur á labbanum en það eru þrír litir viðurkenndir á honum, svartur, brúnn og gulur. Guli liturinn getur verið frá nánast hvítum yfir í svona rauðan lit.

Yndisleg helgi

Jæja, í dag er einn „frídagur“ enn. Svona langar helgar eru ferlega góðar :-). Gott að þurfa ekki að rífa sig upp í stressi og þeytast inn í annir dagsins, að geta gírað sig svolítið niður og farið á þægilegri hraða inn í daginn. Undanfarnir tveir dagar eru búnir að vera yndislegir. Laugardagurinn var frídagur í vinnunni hjá okkur. Við tókum þessa venjulegu helgarhreingerningu sem að vísu dróst svolítið á langinn þar sem við fórum í gegnum dótið hjá krökkunum, hentum pappaumbúðum o.fl. sem þau voru búin að sanka að sér í „bollastellaleik“ eins og þau kalla leikinn. Einnig settum við töluvert af dóti í geymslu svona aðeins til að rýmka til hérna… hefðum alveg mátt setja eitthvað fleira í geymslu en Svavar stóð vörðinn og tók það ekki í mál.

Eftir tiltektina inni fórum við út í veðurblíðuna og fórum í Kölku með tvær fullar kerrur af rusli sem við hreinsuðum hérna upp í fjörunni um daginn. Enn er af nógu að taka og vonandi klárum við þetta fljótlega. Við hreinsuðum síðan upp ýmislegt smárusl og gamlan njóla og þessháttar hérna við húsið hjá okkur. Við þessa tiltekt fengum við líka að hlusta á þessa fínu tónlist sem ómaði hérna um allt því það var nefnilega brúðkaupsveisla í slysavarnarhúsunum hérna við hliðina á okkur… svaka stuð þar. Krakkarnir léku sér með bollarstell og fötur hérna úti á gangstétt, söfnuðu ánamöðkum eða „ormum eins og þau kalla þá. Svona nutum við veðurblíðunnar fram eftir öllu, rétt skruppum inn til að borða og svo út aftur. Ég átti í mestu erfiðleikum við að ná krökkunum inn því veðrið var svo gott og sólin skein þannig að það var sko ekki að koma nótt í hugum barnanna. Rúmlega níu um kvöldið kom ég þeim loksins inn og þetta kvöld sofnuðu þau kát og þreytt :-).

Hvítasunnudagur gekk síðan í garð með rigningu og roki… oh, hvar var veðurblíða gærdagsins? Morgninn fór í vinnu hjá okkur Ara og við fórum eiginlega ekkert út úr húsi í gær nema þá auðvitað Ari sem sinnti hundunum okkar og grillaði um kvöldið. Við fengum nefnilega góða gesti í heimsókn. Þetta voru Þórarinn bróðir, Olga konan hans og Kristín dóttir þeirra. Með þeim voru Jörn og Nick frá Þýskalandi en þeir dvelja hjá þeim í Úthlíðinni þessa dagana. Gaman að kynnast þeim og Nick náði bara ágætlega saman með Svavari. Það var mikið fjör hjá krökkunum og svo auðvitað hjá okkur hinum eldri líka. Þóarinn og Olga! Takk kærlega fyrir innlitið. Þetta var mjög skemmtileg stund sem við áttum saman hérna í gær og takk fyrir Olga að koma með þína gesti til okkar. Þetta eru yfirleitt okkar skemmtilegustu stundir að taka á móti gestum hérna á Gauksstöðum.

Í dag er síðan annar í Hvítasunnu og spurning hvað verður úr þessum degi. Við þurfum eitthvað að vinna og svo veit ég ekki meir… aldrei að vita hvað dagurinn ber í skauti sér. Eigið góðan dag og njótið þess sem hann gefur ykkur :-). Kv.Ág.

sunnudagur, maí 11, 2008

Gleðilega hátíð!

Í dag er Hvítasunnudagur og kallast þessi helgi Hvítasunnuhelgin. En hvers vegna er haldið upp á Hvítasunnudag, hvað er sérstakt við þennan dag? Ég fór á vef kirkjunnar og komst að eftirfarandi:

Hvítasunnan er þriðja stórhátíð kristninnar. Með hvítasunnuhátíðinni lýkur páskatímanum. Nú eru liðnar sjö vikur frá páskum, og fimmtíu dagar. Af þeirri ástæðu ber hvítasunnan á mörgum erlendum tungum nafn sem dregið er af gríska orðinu pentecosté (hinn fimmtugasti). Eins og páskahátíðin á einnig hvítasunnan fyrirrennara í hátíðahaldi Ísraels. Hátíðin sem haldin er á þessum tíma að sið gyðinganna er einskonar uppskeruhátíð. Hún er þakkarhátíð fyrir fyrstu kornuppskeruna. Þess var jafnframt minnst þegar lýður Guðs hafði móttekið lögmálið á Sínaí. Hátíðin er því einskonar sáttmálahátíð.

Kristnir menn minnast á hvítasunnu einnig hins nýja sáttmála náðar og kærleika, þegar heilagur andi er sendur kristnum lýð. Hvítasunna er stofndagur kirkjunnar, og einskonar vígsludagur hinnar almennu kirkju sem Guð gefur í Jesú Kristi. Með því að postularnir töluðu á tungum framandi þjóða er heilagur andi kom yfir þá á hinni fyrstu hvítasunnuhátíð, og fengu skilaboð um að fara út um allan heim og djörfung til að predika, þá hefur kirkjan einnig kallað þetta uppskeruhátíð Krists. Frásögnin í öðrum kafla Postulasögunnar af atburðum hvítasunnudagsins lýsir tilefni dagsins best. Lesa má í fornum textum kirkjunnar að frá hinni fyrstu hvítasunnu, þegar Jesús Kristur efnir fyrirheitið um að Guð muni senda heilagan anda yfir þau sem trúa, þá megi orða það svo að eins og kirkjan er líkami Krists á jörðu þá sé heilagur andi sálin í þeim líkama. Heilagur andi lífgar og leiðir kirkjuna, kennir henni og varðveitir hana frá villu, eins og líka sérhvert þeirra sem játast Jesú Kristi.

Þá hafið þið það :-) Ég viðurkenni það fúslega að þetta vissi ég bara ekki. Vonandi hafið þið átt góðan dag hvort sem þið hafið ræktað Guð sérstaklega eða ekki. Og svo auðvitað vil ég óska öllum mæðrum innilega til hamingju með daginn, sérstaklega þó móður minni. Kv.Ág.

föstudagur, maí 09, 2008

Lífið er gott

Fallegar hugsanir, falleg orð, góðar tilfinningar og góðar gjörðir… þetta er allt eitthvað sem gott er að temja sér því þá verður lífið miklu skemmtilegra og betra :-). Því eins og Megas kvað „Ef þú brosir framan í heiminn, þá brosir heimurinn framan í þig“. Maður þarf bara stundum að minna sjálfan sig á að brosa og vera glaður. Það getur samt verið heilmikil vinna að standa gegn öllu því neikvæða sem dynur á okkur alla daga. Eigið góða helgi framundan og munið að BROSA! Kv.Ág.

Fullorðin er hún

Jæja nú er hún Birna okkar 18 ára í dag sem er mjög skrítið þar sem mér finnst ég ekki vera nema svona 29. Elsku Birna okkar, til hamingju með daginn :-). Nú ert þú orðin sjálfráða og þá er erfitt fyrir okkur að standa gegn vilja þínum (ekki það að það hafi reynt neitt á það). Mundu bara að maður uppsker það sem maður sáir og það er enginn annar en maður sjálfur sem ræður því hvort maður verður hamingjusamur eða ekki. Ég held því fram að maður á að láta drauma sína rætast, allavega að reyna það :-). Við elskum þig öllsömul, litla fjölskyldan þín á Gauksstöðum, pabbi, Ágústa, Svavar og María. Kv.Ág.

þriðjudagur, maí 06, 2008

Hvar ertu Golíat minn?

Æji, þetta er orðið frekar erfitt og maður er farinn að missa alla von um að hann Golíat okkar finnist aftur. Ég vil biðja ykkur samt um að hafa augun opin og líta tvisvar ef þið sjáið gulan, stóran og loðinn kött... þetta gæti verið hann Golíat okkar sem er þá annaðhvort fluttur að heiman eða ratar ekki heim aftur. Hérna eru myndir af gaurnum, leggið þær á minnið. Ef þið sjáið Golíat eða vitið hvar hann er niðurkominn endilega látið okkur þá vita í síma 862 6063 eða 862 7063. Það er erfitt að vita ekki hvar hann er. Kv.Ág.



mánudagur, maí 05, 2008

Myndablogg: TILTEKT Í RIGNINGUNNI



Gestagangur á Gauksstöðum

Eins og ég nefndi í fyrra bloggi þá fengum við gesti hingað í dag (sunnudag). Fyrst komu þeir Guðjón Ingi vinur okkar og sonur hans Árni Þór og kíktu á okkur. Krakkarnir léku sér saman og við hin spjölluðum. Rifjuðum upp gamla tíma á Akureyri og fleira (eins og svo oft áður… ekki rétt Ragga? :-). Alltaf gaman að hitta þá feðga og takk kærlega fyrir innlitið strákar! Við söknuðum þess auðvitað að hitta ekki Röggu líka en vonandi gefum við okkur tíma fljótlega til að kíkja á ykkur í Garðabæinn.

Litlu eftir að Guðjón og Árni yfirgáfu okkur kom hingað góð vinkona okkar hún Hildur Gylfa og með henni í för var hluti af fjölskyldunni hennar, Bjössi og dóttir þeirra Elma. Þau stöldruðu við hérna góða stund og Svavar og María léku við Elmu. Krakkarnir náðu bara mjög vel saman öllsömul og Elma var ekki alveg á því að fara heim þegar foreldrarnir vildu það. Þetta var skemmtileg stund sem við áttum saman hérna og vonandi hittumst við fljótlega aftur… spurning um góðan mat, gistingu og fleira kannski næst? Takk kærlega fyrir innlitið!

Á fyrsta maí fengum við líka gesti, það var Gunnar bróðir Ara, Steinunn konan hans og dóttir þeirra Kolbrún Þórhildur. Þau boðuðu komu sína deginum áður svo Ari gaf sér tíma og bakaði líka þessu fínu súkkulaðitertu handa þeim. Það var töluvert langt um liðið síðan þau komu síðast öll saman. Við áttum góða stund með þeim hérna og greinilegt að þær mæðgur eru miklar kisu-manneskjur enda eiga þau tvær læður heima. Takk kærlega fyrir innlitið… það er alltaf gott að fá góða gesti. Kv.Ág.

sunnudagur, maí 04, 2008

Úti í rigningunni

Já, við ákváðum að drífa okkur bara út í rigninguna í morgun. Við klæddum okkur öll í regngalla og stígvel, vopnuð plastpokum og trukk með kerru... nú átti að taka aldeilis til hendinni og halda áfram við að hreinsa fjöruna okkar og túnin. Það var hellidemba og hægari vindur, fljótlega stytti þó upp og við Ari áttum góðar stundir hérna úti á túni fram yfir hádegið með Svavari og Maríu sem tóku virkan þátt í tiltektinni. Þvílíkt drasl sem við drógum upp hérna í fjörunni. Eftir hádegið fengum við gesti svo það var tekin pása. Við kíktum síðan upp á bæjarskrifstofur og fengum okkur kakó og vöfflur en umhverfisnefnd bæjarins bauð þeim sem tóku þátt í skipulagðri tiltekt undanfarna daga upp á kræsingarnar, mjög fínar vöfflur... nammi namm :-). Við héldum síðan áfram seinnipartinn en þá var farið að auka verulega í vindinn og krakkarnir orðnir svolítið þreyttir. Krakkarnir voru ótrúlega dugleg að hjálpa okkur í dag :-). Þau voru einnig mjög spennt yfir hlutunum sem komu í leitirnar í dag; nokkrar golfkúlur, „risa“ golfkúla, legokarl (vorum búin að finna annan um daginn) og ýmislegt glingur. Við höfðum það á orði að kannski þyrftum við ekkert að kaupa aftur dót handa þeim því hér væri alltaf hægt að finna einhverja hluti sem skemmtilegt væri að leika sér með. Við vorum auðvitað ánægð með dagsverkið og ánægð með að hafa drifið okkur út í dag því það er bara hressandi að vera úti í rigningunni. Kv.Ág.

laugardagur, maí 03, 2008

Sumarið er greinilega handan við hornið

Það eru fleira en fuglarnir sem boða komu sumarsins. Í dag má sjá hérna við hliðina á okkur, hjá húsum slysavarnarfélagsins, fullt af hjólhýsum, fellihýsum, tjaldvögnum og húsbílum. Í dag er verið að taka vagnana úr geymslu. Þetta eru tveir dagar á ári sem þetta er svona; Þegar fólk kemur með vagnana sína á haustin og svo þegar þeir eru sóttir í byrjun sumars. Þegar við fórum út í morgun til að fara með krakkana á fótboltaæfingu, þá sagði hann Svavar okkar „Sjáið þið þarna er kerrupartý“ Hann getur verið svo skondinn strákurinn :-). María kom svo út stuttu seinna og sagði þegar hún sá herlegheitin „ Mamma, nú er sumarið komið“. Æji þau geta nú verið svo næm þessir krakkagríslingar… hitta svona naglann beint á höfuðið… auðvitað er þetta eitt af merkjunum um að sumarið er handan við hornið. Hafið það gott í dag! Kv. Ág.

Dirrindí



Nú þegar voraði og sumarið gekk í Garð byrjuðu fuglarnir að syngja af miklum eldmóð. Lóan syngur sínum fallega söng hér í túninu hjá okkur en hún hópast hér saman alltaf í byrjun sumars. Tjaldurinn lætur sig ekki vanta og fáum við að njóta hljóðanna í honum sem geta verið mjög hávær þegar þeir keppa um maka. Þau ár sem við höfum búið hérna er alltaf eitt par hérna á túninu okkar og karlfuglarnir eru oft tveir til þrír að „berjast“ um kvenfuglinn. Þeir sýna sig og láta öllum illum látum, furðulegt háttarlag og það sem ég skil ekki hvað hún sér við þessa vitleysingja sem hlaupa gargandi um túnið með vængina í eftirdragi… frekar fyndið að sjá. Hér í túninu okkar er líka eitt spóapar en hljóðið í þeim er eitt af einkennishljóðum sumarsins. Hrossagaukurinn er hérna líka og það líður örugglega ekki langur tími þar til við förum að heyra hann hneggja þegar hann tekur sínar flottu dýfur. Síðan eru það mismunandi fuglar sem hafa viðkomu í gulvíðinum hérna í garðinum hjá okkur, um daginn var þar þrastarpar, þar áður auðnutittlingur sem er ferlega fallegur með lítinn rauðan topp á höfðinu. Fyrir fáum dögum sáum við síðan þúfutittling sem Ari náði mynd af eins og sjá má hérna að ofan en hann syngur mjög fallega. Það getur verið notalegt að sitja hérna úti og hlusta á sönginn í öllum þessum fuglum og heyra mávahláturinn óma. Ég elska þetta :-). Kv. Ág.

fimmtudagur, maí 01, 2008

Nokkrum sokkum síðar…

Já, tíminn líður, sokkunum fækkar og nú fer að koma tími á að fylla á sokkaskúffuna aftur. Þið haldið sjálfsagt að nú sé ég endanlega orðin rugluð en þeir sem fylgst hafa með blogginu okkar vita hvað ég er að tala um :-). Nú er sumarið komið samkvæmt dagatalinu og meðan ég man – gleðilegt sumar öllsömul! – Það er samt einhvernveginn ekki alveg komið sumar, það rembist samt eins og rjúpa við staurinn og manni líður einhvernveginn þannig að sumarið sé nú bara hérna rétt handan við hornið. Við höfum fengið ágætis daga hérna undanfarið að vísu hefur þessi vika verið mjög vindasöm hérna og finnst okkur nú vera komið alveg nóg. Það blés nú alveg nóg í janúar síðastliðnum var það ekki annars?

Vorinu fylgir vorhreingerning… þessa dagana er í gangi hérna í Garðinum, eins og á mörgum öðrum stöðum á landinu, hreinsunardagar. Þegar veður hefur verið gott höfum við tekið aðeins til hendinni og hreinsað landið okkar af þeim „reka“ sem sjórinn færði okkur hérna í vetur; eyrnapinna-stangir í þúsundatali, forhlöð úr haglaskotum, ýmislegt plastrusl s.s. netakúlur, umbúðir o.fl. Einnig timbur, vörubretti, jólatré, fiskikassa og ýmislegt fleira sem sjórinn hefur greinilega þurft að taka við einhverju áður. Það hafa allir gott af því að hreinsa fjörur annað slagið, það kennir okkur hvernig umgangast á náttúruna. Plast er greinilega mikið eitur fyrir náttúruna því það brotnar ekki niður svo auðveldlega og er greinilega mjög mengandi. Nóg um það… við fengum mikið magn af þara hérna upp á tún líka, við erum búin að koma megninu af honum í góðan safnhaug og tína úr honum ruslið. Enn eigum við eftir að moka töluverðum þara af landareigninni og það gerum við vonandi núna fljótlega þegar hægir vindinn og við fáum góðan þurrk. Við fengum góða hjálp við tiltektina hjá móður minni og föður þegar þau dvöldu hjá okkur um daginn… þau héldu okkur við efnið :-).

Heilsan hefur verið bara með ágætum hjá fjölskyldunni fyrir utan, kvef, magapestar og flensu… svona þetta vanalega… samt engir ofurskammtar af veikindum. Við Ari höfum verið að æfa aðeins í ræktinni hérna í íþrótthúsinu í Garðinum. Höfum farið þá í hádeginu og æft sem hefur verið frábært og heldur allri vöðvabólgu í skefjum.

Einhverjir hafa haft það á orði við okkur að bloggið okkar sé farið að breytast í kattarblogg, sennilega rétt þar sem við höfum verið svolítið upptekin af köttunum undanfarið. Sólbjört gaut fjórum kettlingum fyrir rúmum fjórum vikum og gekk þremur þeirra vel að sjúga mömmu sína en ein læðan tók ekki spenann almennilega og höfum við þurft að gefa henni pela… já, við erum komin með pelabarn og höfum meira að segja þurft að vakna til hennar á næturna. Það verður ánægjulegt þegar hún hættir að þurfa mjólkina og fer að borða kattarmat. Við höfum haft miklar áhyggjur af honum Golíati okkar en hann er enn týndur og hefur verið það núna í tæpa tvo mánuði. Þetta er ekki bjart, annað hvort er hann fluttur að heiman og er kominn með nýtt heimili einhversstaðar eða að hann er einfaldlega dauður :-(. Við vonumst þó alltaf til þess að hann birtist hérna einn daginn, frekar óþægilegt að vita ekki hvar hann er niðurkominn.

Mamma og pabbi voru hérna hjá okkur í rétt rúma viku og fóru heim um síðustu helgi. Pabbi hjálpaði okkur á vinnustofunni úti eins og svo oft áður en þetta er í þriðja skiptið síðan um áramót sem hann kemur til okkar og mamma hefur komið tvisvar. Mamma hefur hjálpað okkur mikið líka sérstaklega við að taka aðeins til hérna í garðinum hjá okkur ásamt því að tína rusl og raka þara svo eitthvað sé nefnt. Elsku mamma og pabbi, takk fyrir alla hjálpina… það er alltaf gott að hafa ykkur, Svavar og María eru líka ferlega hamingjusöm með að hafa ykkur hérna. Svavar er alltaf að rifja upp sögur af sér og afa sínum í ruslaleiðangri með hjólbörurnar og boltaleikina sem þeir fóru í, þetta var mikið ævintýri fyrir hann :-).

Ýmsir hafa átt afmæli undanfarið. Kristín litla frænka, dóttir Þórarins bróður varð þriggja ára þann 20. Apríl. Við fórum í afmælið til hennar og skemmtum okkur mjög vel. Hann Svavar okkar átti einn góðan þar eins og svo oft áður. Málið er að María og Kristín voru að kíta eitthvað… þá segir Svavar eitthvað á þessa leið: „Nú eru þið báðar orðnar þriggja ára og eigið þá ekki að rífast svona“… hann er svo mikill spekingur stundum. Fleiri áttu afmæli í síðasta mánuði, ektamaðurinn minn hann Ari átti afmæli þann 22. ásamt móður minni og héldum við upp á það hér með góðum mat og komu Þórarinn, Olga og Kristín hingað og samglöddust með okkur… mjög skemmtilegt kvöld. Tóta vinkona okkar átti afmæli þann 26. og dóttir hennar Guðný Björk þann 25. og Óðinn Andri hennar Kötu, systurdóttur hans Ara, átti afmæli þann 30. Vil ég senda afmælisbörnunum öllum innilegar afmæliskveðjur frá okkur fjölskyldunni hérna á Gauksstöðum.

Það er varla hægt að senda frá sér blogg núna án þess að tala aðeins um vinnuna líka. Það er búið að vera bara töluvert mikið að gera í hönnuninni og nú eru að berast pantanir á vörunum okkar hjá Lyng, þar er allt að fara á fullt. Semsagt alltaf nóg að gera hjá okkur. Ýmis verk bíða þess einnig að vera unnin hérna í húsinu okkar bæði að utan sem innan og verðum við að nýta okkur þann tíma sem gefst fyrir utan dagvinnuna í þau verk. Við erum að keppast við að undirbúa það að opna lítið vinnustofugallerí hérna úti í vinnustofu hjá okkur þessa dagana og vonandi getum við opnað þetta í einhverri mynd núna í maí.

Þetta var svona sýnishorn af því sem hefur verið að gerast hjá okkur undanfarið… vonandi gef ég mér oftar tíma til að skrifa eitthvað hérna inn. Þó ekki væri nema sjálfrar minnar vegna en þetta blogg er fyrir mér einhverskonar dagbók. Það er mjög gott að horfa yfir farinn veg og sjá hvað maður hefur verið að bralla, maður gerir nefnilega töluvert þó oft finnist manni sem maður komist bara ekki yfir neitt af því sem mann langar að gera… en ég hef komist að því að ég er alltaf að gera eitthvað skemmtilegt… þessar litlu stundir með krökkunum og Ara, þetta eru mínar bestu stundir… litlu kraftaverkin sem ég upplifi alla daga :-).

Nú læt ég þetta nægja og ef þið hafið komist í gegnum þessa færslu án þess að gefast upp þá vil ég bjóða ykkur góðrar nætur og vona að þið hafið það gott. Knús til ykkar – kv. Ág.