mánudagur, apríl 28, 2008

Kettlingarnir 4 vikna

Nú eru kettlingarnir orðnir fjögurra vikna og farnir að kanna heiminn. Þeir hlaupa orðið hér um allt og því eins gott að gá vel að því hvar maður stígur niður fæti. Það er gaman að fylgjast með þeim og í raun ótrúlegt hve snemma karakterinn kemur í ljós :-). Fólk er búið að sýna kettlingunum mikinn áhuga og höfum við fengið margar fyrirspurnir. Við erum búin að lofa tveimur sem eru því fráteknir. Hér koma nýjar myndir af þeim.


Týr frá Gauksstöðum - frátekinn




Björk frá Gauksstöðum - frátekin




Ýr frá Gauksstöðum - frátekin




Sól frá Gauksstöðum - frátekin

miðvikudagur, apríl 16, 2008

Í öfugri röð

Fékk þennan texta hjá henni Margréti Kröyer vinkonu minni, en hún á einmitt afmæli í dag :-) Elsku Magga til hamingju með daginn. Sjáumst vonandi sem fyrst.

Next Life" by Woody Allen
In my next life I want to live my life backwards. You start out dead and get that out of the way. Then you wake up in an old people's home feeling better every day. You get kicked out for being too healthy, go collect your pension, and then when you start work, you get a gold watch and a party on your first day. You work for 40 years until you're young enough to enjoy your retirement. You party, drink alcohol, and are generally promiscuous, then you are ready for high school. You then go to primary school, you become a kid, you play. You have no responsibilities, you become a baby until you are born. And then you spend your last 9 months floating in luxurious spa-like conditions with central heating and room service on tap, larger quarters every day and then Voila! You finish off as an orgasm! I rest my case.

Kv. Ág.

mánudagur, apríl 14, 2008

Nýjar myndir af kettlingunum

Nú hafa kettlingarnir allir fengið nafn og sóttum við nöfnin í rúnirnar sjálfar sem eru allt saman kraftmiklar og góðar rúnir.


Týr frá Gauksstöðum



Björk frá Gauksstöðum



Ýr frá Gauksstöðum



Sól frá Gauksstöðum

fimmtudagur, apríl 03, 2008

Afmæliskveðja

Hann Dalli vinur okkar á afmæli í dag :-). Kæri vinur, til hamingju með daginn. Vonandi hefur þú átt góðan dag í dag, sjáumst vonandi sem fyrst. Afmæliskveðja frá okkur garðálfunum. Kv.Ág.

þriðjudagur, apríl 01, 2008

1. apríl

Í dag er fyrsti apríl ágæta fólk. Þeir sem koma hér inn til að líta á einhver furður hafa þá líklega „hlaupið“ fyrsta apríl. Ha ha.