mánudagur, mars 31, 2008

Kettlingar á Gauksstöðum





Í dag gaut hún Sólbjört okkar fjórum kettlingum. Þetta er fyrsta gotið hennar Sólbjartar og hún stóð sig með prýði :-). Þetta gekk allt saman mjög vel hjá henni... og var bara eins og hún hefði gert þetta oft áður. Fyrsti kettlingurinn kom í heiminn kl. 10:40 í morgun og sá síðasti kl. 12:43. Móður og afkvæmum heilsast vel. Þetta eru þrjár læður, allar tortie litar (þrír litir; svartur, hvítur og gulur) og að okkur sýnist einn högni sem er svartbröndóttur á litinn. Þeir eru svo litlir greyin að það er erfitt að ná góðri og lýsandi mynd af þeim. Þessar myndir tókum við núna seinni partinn og þið fáið að sjá síðan fleiri þegar kettlingarnir hafa braggast meira og verða komnir með sjónina, þeir breytast svo mikið þegar þeir opna augun :-). Því miður hefur pabbinn ekki látið sjá sig ennþá... vonandi labbar hann sér hingað einn daginn. Kv.Ág.

fimmtudagur, mars 27, 2008

Til hamingju bróðir bróðir :-)









Arkitektarnir, bræður mínir Þórarinn og Einar Bjarki, fengu Norsku Byggingarlistaverðlaunin í ár. Í Noregi er hefð fyrir því að veita þeim byggingum verðlaun sem hafa staðist tímans tönn í að minnsta kosti 5 ár og teljast til tímamótaverka í norskri byggingarlist.

Gaman að þeir skuli báðir fá þessi verðlaun á sama tíma en þeir fá verðlaunin fyrir sína hvora bygginguna.

Einar Bjarki fær verðlaunin sem einn aðalhönnuða að einstaklega fallegri kirkju sem stendur í skógi rétt fyrir utan Osló „Mortensrud kirke“. Einar vann að þessari byggingu hjá Jensen og Skodvin Arkitektkontor AS í Osló. http://jsa.no/. Einar Bjarki býr enn í Noregi og vinnur hjá Arkitektur N sem er fagtímarit um arkitektur http://www.arkitektur.no/. Hann vinnur líka sem sjálfstætt starfandi arkitekt.

Þóarinn fær verðlaunin aftur á móti sem aðalhönnuður Norsku Vöruhallarinnar eða Norges Varemesse hjá Arne Henriksen Arkitekter AS. http://www.ah-arkitekter.no/ en Þórarinn vann hjá Arne í 6 ár í Oslo eftir að hann lauk námi í arkitektur. Gamli vinnuveitandinn hann Arne býður Þórarni til Oslóar til að hann geti verið viðstaddur verðlaunaafhendinguna þann 3. apríl næstkomandi. Þórarinn vinnur hjá Batteríinu arkitektar í Hafnarfirði. http://www.arkitekt.is/.

Kæru bræður til hamingju með þessa viðurkenningu! Þið eruð auðvitað langbestu arkitektarnir :-) ásamt auðvitað mákonunum mínum tveimur þeim Olgu og Liv ;-). Til lukku!!! Ég er stolt af ykkur. Kv.Ág.

þriðjudagur, mars 25, 2008

Hefur þú séð Golíat?



Hann Golíat okkar, sem er norskur skógarköttur, er týndur og er hans nú sárt saknað. Golíat fór heiman frá sér fyrir um hálfum mánuði síðan og hefur ekki sést síðan. Hann á það til að skreppa stundum að heiman í nokkra daga en hann hefur aldrei verið þetta lengi í burtu áður.

Golíat er stór, gulbröndöttur, síðhærður og töluvert hvítur á fótum og maga. Golíat kemur ekki endilega þegar kallað er á hann nema þá hann sé innandyra hér heima. Því gæti hann virkað á einhverja sem villiköttur. Hann var ekki með neina hálsól þegar hann hvarf en hann er örmerktur.

Ef þú hefur séð til ferða hans síðan 10. mars, veist hvar hann er niðurkominn eða veist um einhverja sem gefa ókunnugum köttum að éta þá vinsamlegast hringið í okkur í síma 557 6061 eða 862 6063 (Ari eða Ágústa).

fimmtudagur, mars 13, 2008

Sokkaskrímslið ógurlega

Undarlegir hlutir hafa gerst hér á Gauksstöðum undanfarna mánuði. Sokkar heimilisfólksins sem og gesta hafa slitnað með óeðlilegum hraða svo að tær og hælar hafa staðið út úr plöggunum við litla hrifningu okkar. Svo rammt hefur kveðið að þessu að við höfðum það í flimtingum að hér væri á ferðinni einhverskonar sokkaskrímsli, lítið nagdýr sem er á ferðinni þegar viðkomandi fórnarlamb er óviðbúið og nagar gat á sokka svo að stórsér á. Þetta náði hámarki hér fyrir um þremur vikum síðan þegar gat kom á nýju sokkabuxurnar hans Svavars en þær voru einungis viku gamlar. Eins og gefur að skilja vorum við orðin frekar leið á að vera alltaf með sundurrifna sokka svo að þegar við hittum einn af arkitektunum í fjölskyldunni (þeir eru fjórir) þá barst þetta í tal og fannst honum þetta býsna merkilegt. Næst þegar hann kom síðan í heimsókn þá var hann með svarið. Hafiði heyrt talað um Pergo-sokka? Virkilega? Það er víst staðreynd að Pergo parket slítur sokkum með ógnarhraða og finnst okkur að sölumaðurinn hefði getað minnst á þetta þegar við keyptum parketið á sínum tíma. „Jæja, hér eru þá 120 fermetrar af parketi með 50 ára slitábyrgð. Vel á minnst, slitábyrgið gildir ekki á sokkum nema þeir séu með stálþráðum.

Lítil saga af Svavari

Það eru orðnar til nokkrar góðar sögur af honum Svavari okkar. Nú bættist ein við um síðustu helgi :-). Við vorum í Smáralindinni að útrétta smávegis og vorum á gangi fram hjá nýja kaffihúsi Kaffitárs sem er þarna úti á ganginum sjálfum. Uppi á borðinu er svona lítill auglýsingastandur úr pappír með auglýsingu frá Karlmennogkrabbamein.is og eins og flestir hafa tekið eftir undanfarið þá gengur auglýsingaherferðin út á það að það er teikningmyndafígúra með risastórar hendur sem fræðir fólk um krabbamein og hvernig megi greina einkenni o.s.frv. Þessi fígúra er alsber... bara á tippinu. Nóg með það en hann Svavar okkar hann segir svona þegar við göngum þarna fram hjá: „mamma, pabbi sjáið þið! Þarna er maðurinn með tippið!“. Hann var auðvitað að benda á lítið auglýsingaspjald en það vissu örugglega ekki hinir í kringum okkur. Ég held það hafi samt enginn staðið nákvæmlega í sömu línu og hann Svavar benti en þetta mátti misskiljast. Þessi börn, þau eru svo æðisleg. Við höldum áfram að safna svona augnablikum áfram og vonandi eiga þau eftir að verða mörg í viðbót :-). Kv.Ág.