föstudagur, febrúar 29, 2008

Mama Mia

Mér finnst þessi alltaf æðisleg!

Velkomin í heiminn litla frænka

Í morgun kom í heiminn lítil prinsessa, hún fékk nafnið Maia Katrín og býr í henni stóru Ameríku. Þessi litla prinsessa er annað barnabarn hennar Kristlaugar systur Ara. Elsku Gerður og Chris til hamingju með frumburðinn og gangi ykkur vel. Elsku Kristlaug og Hjölli til hamingju með ömmu og afabarnið. Við hlökkum til að sjá myndir af litlu prinsessunni sem er víst með svart hár. Kveðja frá okkur öllum á Gauksstöðum; Ari, Ágústa, Svavar Axel, María Elísa, Birna Ósk og Hera Björt.

sunnudagur, febrúar 24, 2008

Myndablogg: FAÐMLAG FRÁ GOLÍATI



fimmtudagur, febrúar 21, 2008

Bros til ykkar


Gengið í mjög svo fallegu veðri

Núna áðan var NA átt og tæpir 3 m/sek og hiti um 0.2°C. Við Ari fórum út áðan og fengum okkur góðan heilsubótargöngutúr í björtu og fallegu veðrinu. Þetta var alveg yndislegt og gott start á annars annasömum degi :-). Því miður verður þetta ekki svona áfram því á næstu dögum er spáð umhleypingum hér sunnanlands. Hafið það gott í dag. Kv.Ág.

föstudagur, febrúar 15, 2008

Dave Allen

Munið þið eftir þessum snillingi?

Brandari í lok viku :-)

Þennan brandara fann í flakki mínu um bloggheima en ég veit ekki hver höfundurinn er:

Í þorpi einu birtist einu sinni maður sem kvaðst vilja kaupa apa af þorpsbúum á 1000 krónur stykkið. Þar sem mikið var um apa í nágrenni þorpsins, fóru þorpsbúar að veiða apana og selja manninum þá.

Maðurinn keypti þúsundir apa af þorpsbúum á 1000 krónur, en þegar framboðið fór að minnka, bauðst maðurinn til að borga 2000 krónur fyrir apann. Aftur jókst framboðið um tíma, en síðan minnkaði það enn frekar og hætti loks alveg, þar sem erfiðara var fyrir þorpsbúa að finna fleiri apa til að selja. Þá tilkynnti maðurinn að hann myndi borga 5000 krónur fyrir hvern apa sem hann fengi, en hann þyrfti aðeins að skreppa frá og aðstoðarmaður hans myndi sjá um kaupin á meðan.

Eftir að maðurinn var farinn, hóaði aðstoðarmaðurinn þorpsbúum saman og bauðst til að selja apana sem geymdir voru í búrum, á 3500 krónur stykkið. Fólkið gæti svo þegar maðurinn kæmi aftur selt honum apana á 5000 krónur. Þorpsbúar söfnuðu því saman öllu sínu sparifé og keyptu apana af aðstoðarmanninum.

Síðan hefur ekkert spurst, hvorki til mannsins né aðstoðarmannsins.

-Og núna veistu allt um hvernig hlutabréfamarkaðurinn virkar!

Kv.Ág.

mánudagur, febrúar 11, 2008

Afmæliskveðjur

Elsti bróðir minn hann Kristinn Viðar átti afmæli í gær og mágkona mín hún Olga á afmæli í dag. Viljum við óska ykkur báðum innilega til hamingju með daginn. Kv. Ág.

laugardagur, febrúar 09, 2008

Öskudagurinn í leikskólanum


María að reyna að slá köttinn úr tunnunni


Svavar með félögunum


María með Emelí bestu vinkonu sinni


Svavar með Berglindi vinkonu sinni og fleirum

Lífið á Gauksstöðum undanfarnar vikur

Jæja nú held ég sé kominn tími til að láta aðeins vita af okkur. Við erum bara nokkuð hress flestöll en Svavar og María eru búin að vera með kvef í vikunni og smá kommu lumbru í gær og í morgun. Annars erum við búin að vera bara nokkuð hress síðan um áramót.

Janúar kom okkur nú á óvart í hönnuninni en við vorum búin að búa okkur undir það að hafa lítið að gera svona í byrjun árs, allavega fyrstu tvær vikunnar. Raunin varð önnur og janúar er búinn að vera mjög góður en febrúar aðeins slakari sem líka má rekja til þess að við höfum ekki sinnt hönnuninni nógu vel síðustu eina og hálfa vikuna þar sem við erum búin að vera á fullu við að standsetja vinnustofuna okkar hérna úti í „fjósi“. Pabbi sem sagt kom til okkar aftur núna fyrir um tveimur vikum og er búinn að vera að hjálpa okkur þessar vikur. Þetta hefur gengið bara vel og fer að líða að því að við getum farið að bjóða fólki þar inn. Það er nefnilega stefnt að því að opna smá gallerí hérna hjá okkur þar sem hægt verður að sjá hvað við erum að gera bæði í hönnuninni, minjagripunum, gjafavörunum og einnig í myndlistinni. Þetta á eftir að verða spennandi viðbót :-).

Við erum búin að vera að undirbúa árið fyrir Lyng og er að styttast í það að töluvert fleiri vörur komi á markað hjá okkur. Það er semsagt afrakstur þróunarvinnunnar á síðasta ári sem var heilmikil. Annars kemur salan ekki til með að fara af stað aftur í minjagripunum fyrr en um páskana í fyrsta lagi og þá er líka eins gott að vera tilbúin með lager og nú er líka verið að fara af stað í að framleiða inn á lagerinn fyrir sumarið.

Svavar og María hafa haft það fínt í leikskólanum, Svavar hefur meira að segja verið tregur á köflum að koma strax með okkur heim þegar við sækjum þau krakkana um klukkan fjögur á daginn. Það var haldin gleðivika í janúar, þar sem m.a. leikskólakennararnir voru allir með furðuhatta einn daginn þegar við mættum í skólann einnig sem vikan endaði á náttfatadegi og mættu þá bæði starfsmenn og börnin í náttfötum í skólann… það var frekar skrítið að vakna, klæða sig úr náttfötunum og fara svo í önnur náttföt… þetta fannst Svavari frekar fyndið. Svo var auðvitað haldið upp á bóndadaginn og borðaður þorramatur þegar Þorrinn gekk í garð, á bolludaginn borðuðu krakkarnir bollurnar sem þau bökuðu sjálf, sprengidagurinn var eins og annarsstaðar borðað var saltkjöt og baunir og svo var hápunkturinn í vikunni var efalaust öskudagurinn. Svavar og María fóru í búningunum sem þau fengu í jólagjöf frá frænku sinni, Kristlaugu og Hjölla. Svavar var í Cars-kappakstursbúningi og María var blómálfur. Það var haldið ball í skólanum og kötturinn sleginn úr tunnunni.

Það sem af er ári hefur fjölskyldan verið mjög heimakær og lítið félagslíf verið stundað… við erum einhvernveginn alltaf sjálfum okkur nóg. Þó er það eiginlega skemmtilegasta sem við gerum er að fá góða vini í heimsókn eða að sækja aðra heim… maður þarf bara að drífa í því… svo eru auðvitað allir svo uppteknir eitthvað. Birna og Hera eru búnar að koma alveg hálfsmánaðarlega til okkar undan farrið og hefur það verið einkar ánægjulegt þar sem í fyrra leið frekar langt á milli að þær kæmu til okkar. Þóarinn bróðir er búinn að koma allavega þrisvar síðan um áramót (geri aðrir betur :-)). Í eitt skiptið buðum við honum, Olgu og Kristínu í þorramat og saltfisk. Þetta var mjög skemmtilegt kvöld og gaman fyrir hann föður minn að geta hitt þau líka. Ef veðrið hefði ekki átt að fara að versna þarna um kvöldið hefðu þau sennilega gist líka. Svavar, María og Kristín eru ferlega góð að leika sér gaman og eins og áður þá segir María alltaf þegar Kristínu ber á góma: „Ég elska Kristínu“… hún er náttúrulega svo mikið krútt hún María þegar hún segir þetta :-).

Eins og kom fram í síðustu færslu hjá Ara þá voru læðurnar að breima og hugsanlega tókst að para Golíat og Sólbjörtu en það er ekki komið í ljós ennþá. Við erum að vísu undanfarna daga búin að vera með hjartað í buxunum yfir Golíati en hann fór hérna út fyrir rúmri viku síðan og hefur ekki látið sjá sig fyrr en í morgun… mikið vorum við fegin að sjá hann og hann feginn að sjá okkur. Allavegana er ég búin að fá nokkur knús frá honum. Við vorum farin að halda að við sæjum hann kannski ekki aftur… meira flakkið á honum karlinum :-(.


Síðan er það auðvitað veðrið undanfarið, er nokkuð annars hægt að sleppa því að ræða veðrið eins og sannur íslendingur. Það hefur gengið á ýmsu hérna og eins og pabbi og Ari voru bara að tala um í morgun þá er veðrið svolítið klofið á geði því aðra stundina eins og í dag skin sólin þannig að varla er hægt að vera hérna í stofunni hjá okkur (það vantar nefnilega gardínur ennþá) og hina stundina gengur á með svo dimmum éljum að varla sést í næsta hús. Í einu veðrinu (af mörgum) gekk aldan hérna vel upp á varnargarðinn og vindurinn feykti henni hingað á gluggana, hurðin af hjallinum fauk ásamt sjónvarpsloftnetinu og endurvinnslutunnunni, sem fannst reyndar hérna úti á túni. Einnig beyglaðist járnplata á hjallinum en fauk ekki. Í nótt svignaði álkanntur á þakkantinum á Gauksstöðum og það losnaði eitthvað kítti við gluggann í garðskálanum sem síðan slóst alltaf til í vindinum. Þetta var orðin rúmlega eins meters svipa má segja sem barði á glugganum og hélt eitthvað vöku fyrir pabba í nótt sem svaf í næsta herbergi við garðskálann. Annars finnst mér snjórinn undanfarið hafa verið bara heimilislegur og notalegur þó svo hann geti náð sér ansi mikið upp hérna snjóbylurinn þá er bara notalegt þegar hægt er að vera bara innandyra. Pabbi hefur tildæmis ekki setið hérna inni og notið þess að hlusta á útvarpið eða tónlist eða eitthvað þessháttar heldur hefur hann setið í stólnum og notið þess að hlusta á veðrið :-). Mér líkar aftur á móti ekki mjög við umhleypingar með rigningu og roki eins og var hérna í gær (Arghh!) Þá vil ég frekar snjó og stillu. Ég held þetta tengist því að ég er alin upp við snjóinn og finnst hann fyrir vikið eitthvað svo heimilislegur þó öðrum hérna líki hann ekki.

Nú er þetta orðin alltof löng færsla og ætla ég að láta þetta nægja núna. Sæl að sinni… Kv.Ág.