mánudagur, nóvember 03, 2008

Er fegurðin mælanleg?

Ég sá litla frétt sem birtist á forsíði Morgunblaðsins föstudaginn síðasta. Þar segir að samkvæmt nýrri rannsókn tveggja vísindamanna við St Andrewsháskóla þá erfi karlar ekki fegurð feðra sinna. Ég veit ekki hvort fréttin er illa þýdd eða hvort þetta sé meiningin. Mig langar að vita hvaða útgangspunktur á fegurð er notuð í þessari rannsókn. Hver er hin raunverulega fegurð? Getur einhver sagt mér það? Er fegurðin mælanleg? Það er kannski hægt að gera rannsókn um útlit og andlitsdrætti en ég tel það vera fjarstæðu að hægt sé að gera rannsóknir á fegurð því fegurðin er afstæð.

Ég hef kynnst fólki sem virkar „fagurt“ við fyrstu sýn en fljótt hverfur þessi tilfinning þegar maður fer að kynnast viðkomandi manneskju og á sama hátt hittir maður manneskju sem ekki er talin neitt rosalega myndarleg en vex þvílíkt og getur orðið ein fallegasta og besta manneskja sem maður hefur hitt. Kv.Ág.

2 orð í belg:

mommie2CapitolKing sagði...

Satt er það, svolítið skrýtin rannsókn þetta... dálítið hlutdræg og uppfull af skoðunum rannsakandans myndi ég giska á ;)
Annars þá er ég mjög sammála þér, sumt fólk er rosalega fallegt við fyrstu kynni - annað fólk alveg hræðilegt - en svo kanski verður því þveröfugt farið þegar maður kynnist manneskjunum.
kv. Sæunn

Nafnlaus sagði...

Eins og talað úr mínum munnu :-)
Knús og kossar til þín elsku fallega frænka