Fyrsti snjórinn kom í ár þann 2.október. Í fyrstu lítil föl sem varla festist og að lokum dálítiið „teppi“ um kvöldið. Ekki mikill snjór að vísu hér við sjóinn… örlítið meiri inni í Reykjavík :-). Ferðin með Maríu í leikskólann gekk frekar hægt þennan morguninn þar sem við gengum í rólegheitum þurfti hún að stoppa að mér fannst við hvert fótmál til að skoða og þreyfa á snjónum. Bæði Svavar og María voru mjög ánægð með snjóinn þó foreldrarnir væru ekki eins glaðir. Þó viðurkenni ég að mér finnst snjórinn alltaf heimilislegur og þá sérstaklega þegar um er að ræða froststillur þar sem snjórinn nær að stoppa aðeins við. Eins þoli ég ekki rokið og rigninguna sem við höfum þurft að búa við undanfarnar vikur á undan. Arghh… gæti gert hvern mann vitlausan. Vonandi verður þessi vetur ekki eins erfiður og síðasti vetur með öllu sínu roki og veðraham. Í fyrra kom fyrsti snjórinn ekki að vísu fyrr en 28. október.
Um þjóðfélagið haf blásið harðir vindar undanfarið og ákveðinn kuldi virðist vera kominn í fjármál okkar íslendinga. Veðrið hefur leikið okkur íslendinga svipað undanfarið og virðist sem strax á morgun hlýni aftur og eigi að byrja að rigna. Svona er Ísland í dag. Nóg um veðrið þar til síðar. Kv.Ág.
laugardagur, október 04, 2008
Vindasamt á Íslandi
... Ágústa
Labels: Dagbók
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 orð í belg:
Sendu inn athugasemd