laugardagur, október 04, 2008

Góður laugardagur í faðmi vina

Í dag fórum við inn í Reykjavík og kíktum á Þórarinn bróður og fjölskyldu. Þar sem Þórarinn bróðir átti afmæli í gær bakaði Olga köku í dag og sló upp veislu… nammi namm. Krakkarnir áttu góða stund saman þó sérstaklega stelpurnar sem léku sér saman út í eitt. Gaman að fylgjast með þeim frænkum. Það kæmi manni ekki á óvart þó seinna meir stofnuðu þær hljómsveit saman. Þá munum við að þær byrjuðu að æfa árið 2008 :-). Þórarinn og Olga buðu okkur einnig í mat sem var mjög góður. Alltaf gaman að sækja þau heim. Takk kærlega fyrir okkur! Kv. Ág.

0 orð í belg: