fimmtudagur, júlí 17, 2008

Stiklað á stóru

Hérna kemur smá færsla í dagbókina okkar góðu. Eins og fram hefur komið þá var júní mjög erfiður mánuður hérna á Gauksstöðum fyrir alla. Mikil vinna allan daginn, öll kvöld fram á nótt og flest allar helgar. Þetta var vinna bæði í hönnun og skipulagi vegna 100 ára afmælis Garðs, hönnun og skipulag fyrir Sólseturshátíðina ásamt hönnun fyrir hina ýmsu viðskiptavini. Við meira að segja frestuðum einhverjum verkefnum þar sem við hreinlega komumst ekki yfir allt saman sem þurfti að gera. Því miður sat Lyng á hakanum og höfðum við lítinn tíma til að undirbúa sumarið með því að framleiða vörur inn á lager. Þetta þýðir að nú í dag erum við töluvert bundin við að framleiða vörur því pöntununum rignir hér inn. Það er unnið mikið þessa dagana líka en þó höfum við tekið einn og einn dag frekar rólega.

Við erum þó komin töluvert á veg að undirbúa opnunina á galleríinu okkar hérna en því var rutt aðeins áfram í júní svo við gætum opnað myndlistarsýninguna okkar sem opin var frá 14. Júní – 30. Júní. Frábær tilfinning að þetta sé alveg að hafast :-). Sýningin gekk vel og komu sennilega yfir 350 gestir og sáu sýninguna á meðan hún var opin. Galleríið hefur verið lokað frá júní en verður aftur opnað í bráð þegar sölugalleríið verður opnað formlega. Stefnt er á að opna laugardaginn 26. júní. Nánar um það síðar :-).

Svavar og María fóru í sumarfrí þann 7. júlí síðastliðinn og var föstudagurinn 4. síðasti vinnudagurinn hjá þeim. Strax á föstudeginum var haldið upp á það að fríið væri hafið og var farið og fengið sér ís í Reykjanesbæ. Á laugardeginum fórum við inn í Reykjavík þar sem við fórum, eins og Ari var búinn að segja ykkur frá hér fyrr, í húsdýragarðinn með Þórarni og Kristínu. Á mánudeginum fórum við síðan í dagsferð á Snæfellsnesið þar sem við fengum líka þetta dúndur veður 22 stiga hita og næstum því logn. Við fórum í Djúpalónsfjöruna en þangað er dýrlegt að koma… svo mikil orka þarna… sem gott er að sækja. Þar blés nú samt töluvert á okkur þannig við þurftum að dúða okkur og klæða af okkur veðrið. Þetta var mjög skemmtilegur dagur sem allir nutu í botn. Þriðjudagurinn var síðan dagur útréttinganna og var farið í Reykjavík og ýmislegt efni í vörur sótt. Auðvitað var komið við í dótabúð fyrir krakkana þar sem þau voru dugleg að flengjast þetta með okkur. Annars þurfa þau ekkert dót þar sem nóg er til af því hérna heima. Við tóku síðan vinnudagar sem þó hafa sumir hverjir breyst í mikla skemmtun fyrir krakkana þar sem þau hafa fengið aðra krakka í heimsókn og sótt þau sömu líka heim. Þetta eru James Robert, Ástþór Helgi og Valdimar Steinn.

Nú er fimmtudagsmorgun og veðrið virðist ætla að verða yndislegt eins og í gær. Undangengnir eru nokkrir rigningadagar sem voru kærkomnir fyrir gróðurinn sem var alveg að skrælna hérna… túnið er meira að segja að verða grænt aftur eftir sláttinn. Túnin á Gauksstöðum voru nefnilega slegin 29. júní og hirt þann 30. Sprettan var einhverju minni en árið áður en um 28 rúllur fengust af túninu núna. Það er svo gaman þegar túnin hafa verið slegin… svo snyrtileg og falleg :-). Veðrið í júní var frábært nema auðvitað frá föstudeginum 27. (frá níu um kvöldið eða um leið og tónleikarnir hófust sem var fyrsta atriðið tengt hátíðinni) og fram yfir helgina sem Sólseturshátíðin stóð… grrrrr… háfaða rok og kaldur vindurinn. Spáin virðist vera góð næstu dagana eða alla vegana fram yfir næstu helgi. Svo nú er að njóta þess :-). Hafið það gott! Kv.Ág.

0 orð í belg: