


Það var aldeilis gestagangur um helgina hjá okkur hérna á Gauksstöðum. Upp úr hádegi á laugardeginum kom hluti af fjölskyldunni hans Ara í heimsókn. Þetta voru tengdapabbi og Hulda, Gunnar bróðir hans ásamt Steinunni og dóttur þeirra Kolbrúnu og Kristlaug systir hans ásamt sínum ektamanni, Hjölla og barnabarni þeirra honum Óðni Andra. Það voru grillaðir dýrindis hamborgarar og pylsur hérna úti í garði. Sannkölluð garðveisla þar sem allir nutu veðursins og létu geisla sólarinnar leika um sig. Svavar afi tók smá fótbolta með krökkunum, Kristlaug og Gunnar rifjuðu upp smá takta í golfinu og Kolbrún tók sig til og las fyrir krakkana úti átúni. Svavar og María vildu bara eiga Kolbrúnu held ég og spurðu hvort hún mætti ekki koma daginn eftir líka… góð frænka í þeirra augum. Þau elska það að einhver skuli gefa þeim svona tíma og athygli. Þetta var mjög skemmtileg stund og alltaf er jafn glatt á hjalla þegar þessi hópur hittist… sem er aðeins of sjaldan… mættum alveg eiga oftar svona stundir saman. Við þökkum kærlega fyrir góðan hitting öllsömul :-). Kv.Ág.
þriðjudagur, júlí 22, 2008
Helgin byrjaði vel
... Ágústa
Labels: Dagbók
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 orð í belg:
Sendu inn athugasemd