sunnudagur, júní 15, 2008

Til hamingju með daginn Garðbúar!

Nú er þessi yndislegi hátíðardagur að kveldi kominn. Dagurinn byrjaði snemma, Ari lagði síðustu hönd á heiðursborgara-vegginn á bæjarskrifstofunum fyrir níu í morgun en lágmyndirnar af heiðursborgurum Garðs voru afhjúpaðar þar síðan um klukkan 10. Síðan tók við lokaspretturinn að undirbúninginum í íþróttamiðstöðinni þar sem hátíðardagskráin var síðar í dag. Ari var að aðstoða við að koma upp hljóðkerfinu og redda því sem þurfti að redda svo hátíðin gæti byrjað. Hann var þar alveg til að verða 14 þegar hátíðardagskráin byrjaði. Ég, Svavar og María fórum og sáum þegar listaverkið Skynjun var afhjúpað við hátíðlega og fallega athöfn um 11 leitið í morgun, Það voru tvær gamlar sjómannskonur sem afhjúpuðu verkið sem var vel við hæfi þar sem verkið á að tákna og standa fyrir þær konur í Garðinum sem í gegnum tíðina hafa beðið heima eftir að mennirnir, synirnir og bræðurnir skiluðu sér heim aftur af sjónum. Mjög táknrænt verk og skemmtilegt. Við afhjúpinina drógu þessar konur niður band sem bundið var utan um léttan dúk sem vafinn var utan um sex metra háa konuna. Þetta var alveg frábær gjörningur þar sem búið var að koma verkinu svo fallega fyrir þarna í móunum, kríurnar svimuðu yfir og steyptu sér gargandi niður að hópnum sem safnast hafði saman við þessa athöfn... þær tóku þátt í þessu með okkur... síðan þegar böndin voru dregin niður fór þessi þunni, létti dúkur að flakta í vindinum og líktist slæðu sem liðaðist um líkama konunnar og á síðasta augnablikinu lá „slæðan“ eingöngu fyrir andliti konunnar þar sem hún dróst hægt og svo mjúklega frá vitum hennar... oh, þetta heppnaðist fullkomlega... svo fallegt! Við Ari skiptum síðan liði og var hann með krakkana á meðan ég fór á hátíðardagskrána klukkan 14. Þetta var mjög skemmtileg dagskrá sem rann ljúft yfir. Ég er bara mjög ánægð með hve vel heppnaðist allur tónlistarflutningurinn og tónverkið hans Áka sem flutt var og vakti misjöfn viðbröð fannst mér vera áhugavert listform. Þetta var svona nútíma tónverk flutt af blásturshljóðfærum og tölvu og á tjaldi að baki tónlistarmönnunum var varpað texta. Í byrjun fannst mér ég vera að hlusta á lúðrasveit vera að stilla hljóðfærin sín; stakir og einmana tónar ómuðu og virtust ekki eiga samleið með öðrum... smám saman fór nú samt ýmislegt að gerast og tónarnir sem tölvan gaf frá sér urðu mjög áhugavert ískur.Málið er að það sem tölvan flytur er ekki fyrirfram unnið heldur vinnur hún jafnóðum úr því sem hljóðfæraleikararnir leika. Ekki það að ég „fíli“ tónverkið sem slíkt þá fannst mér það samt áhugavert og líkjast meira gjörningi. Þetta var áhugaverð og skemmtileg upplifun. Vinkona mín sem var þarna líka líkti þessu við það að hlusta á náttúruna; á vindinn... ískur í glugga eða einhverju slíku... svona eins og að sitja og hlusta á brjálað veður sem lemur húsið að utan. Miðað við þessa lýsingu ætti nú karli föður mínum að líka verkið en hann elskar nefnilega að sitja inni og hlusta á snjóstorminn úti. Eftir að hátíðardagskránni lauk um 4 dreif ég mig heim og nú var komið að því að opna sýninguna aftur en allar sýningarnar voru opnar frá 16 til 20. Þetta var mjög áhugaverð og skemmtileg helgi fyrir garðbúa og gesti þeirra og vil ég óska garðbúum öllum innilega til hamingju með daginn í dag sem var svo hátíðlegur og skemmtilegur í alla staði. Takk fyrir mig :-) Kv.Ág.

0 orð í belg: