sunnudagur, júní 22, 2008

Að njóta góða veðursins





Framan af deginum í gær og fyrrakvöldið einkenndist af stressi í okkur hjónunum. Þessi Sólseturshátíð og allar þessar hátíðir hérna í Garðinum eru farnar að taka sinn toll hjá okkur. Það er erfitt að standa í skipulagningu og mikilli vinnu í svona langan tíma. Svo þegar hlutirnir ætla sér ekki alveg að ganga upp þá verður þetta frekar erfitt allt saman. Þetta á samt allt eftir að blessast og stefnir bara í skemmtilega og áhugaverða Sólseturshátíð um næstu helgi þ.e. 27. Til 29. júní. Bara að drífa sig með tjaldið eða fellhýsið í sveitina um næstu helgi og taka þátt í þessu með okkur :-).

Í gær var sýningin okkar opin frá 14 – 17 og þannig verður það líka í dag. Þar sem við vorum með opið í gær urðum við að vera hérna úti á vinnustofu. Við notuðum því tækifærið og böðuðum okkur í sólinni hérna úti, snyrtum aðeins umhverfið, hnýttum nokkur men og nutum samveru vina okkar. Hildur Gylfa vinkona okkar kom hérna í heimsókn ásamt dóttur sinni Elmu. Þær böðuðu sig í sólinni með okkur, borðuðu „arapönnsur“ og nutu sveitarinnar. Robert pabbi hans James, besta vinar Svavars, kom líka og stoppaði í góða stund þegar hann sótti James en hann var hérna allan daginn í gær með Svavari… þeir eru svo góðir félagar. Alex Breki birtist hérna líka úti og lék við þá. María og Elma náðu bara vel saman og léku sér hérna á túninu m.a. og hurfu inn í grasið og blómin eins og einhverjir blómálfar.

Gærkvöldið einkenndist svo af skipulagi og vinnu… þetta tekur engan enda. Nú er bara rétt um vika þar til hátíðin er um Garð gengin og þá er hægt að fara að einbeita sér meira að Lyng og vörunum okkar, ásamt því að sinna okkur sjálfum og börnunum. Ég get vart beðið eftir því að þessi „heavy“ mánuður verði liðinn.

Dagurinn í dag virðist ætla að einkennast af veðurblíðu eins og dagurinn í gær. Þannig þið sem hafið tök á því… njótið dagsins :-). Það ætla ég allavegana að reyna. Kv.Ág

0 orð í belg: