Á dögunum komu 16 sjálfboðaliðar frá SEEDS samtökunum í Garðinn en þau hafa unnið að því að aðstoða við undirbúning fyrir 100 ára afmæli bæjarins. Þau hafa verið að hjálpa okkur að taka hér til og gera fallegt í umhverfinu okkar og allt er þetta gert í sjálfboðavinnu. Þetta unga fólk er alveg yndislegt svo vinalegt og kurteist. Það væri óskandi að heimurinn væri svona… þar sem hjálpast er að án þess að krefjast greiðslu fyrir það. Í dag er það þannig að fólk hefur ekki lengur tíma eða vilja til að hjálpa náunganum og ef „hjálpin“ berst þá er yfirleitt einhvers krafist á móti. Þó eru til undantekningar á þessu og enn eru til gæðablóð í þessum heimi… sem betur fer… annars værum við glötuð.
Þessi samtök eru alveg frábær og vildi ég að ég hefði kynnst einhverju slíku þegar ég var unglingur. Þau vinna svo þakklátt starf og engum háð. Lesa má um samtökin á heimasíðunni þeirra: www.seedsiceland.org.
Í gær buðu SEEDS-krakkarnir Garðbúum upp á smakk af þjóðarréttum sjálfboðaliðanna en þau koma frá sjö löndum. Þetta var haldið hér í Samkomuhúsinu okkar hérna í Garðinum og var alveg bráðskemmtilegt að rölta yfir til þeirra og fá að taka þátt í þessu með þeim. Svavar og María nutu sín líka í botn enda voru þarna fyrir Ástþór Helgi og Valdimar úr leikskólanum… það var mikið fjör hjá rollingunum en þau léku sér mestan tímann fyrir utan samkomuhúsið.
Í dag fór Særún með þau í ferð um Reykjanesið og enduðu þau ferðina í vinnustofunni - galleríinu okkar hérna á Gauksstöðum. Þetta var mjög gaman og sýndum við þeim hvað við erum að gera og sögðum þeim aðeins frá okkur. Alltaf gaman að fá góða gesti í heimsókn. Þetta er reyndar þriðji hópurinn sem kemur til okkar. Fyrstir komu hópur nemenda í gullsmíði við Iðnskólann (10 manns), svo komu leiðsögumenn Reykjaness (9 manns) og núna SEEDS-hópurinn (16 manns).
Þá læt ég þetta nægja í dag og vona að fólk hafi notið veðursins í dag en hérna hjá okkur er nefnilega búið að rigna reiðinnar ósköp ásamt því að bæði kaldur og napur vindurinn hefur farið hér mjög hratt yfir í dag. Kv.Ág.
laugardagur, júní 07, 2008
Góðir gestir í Garði
... Ágústa
Labels: Dagbók
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 orð í belg:
Það er nóg að gera hjá ykkur kæru vinir. Vil ég minna ykkur á að gefa ykkur stund til að loka augunum, anda rólega og slökkva á dagsins önn í huganum í augnablikk. Þetta þarf ekki að vera langur tími, smá stund gerir ótrúlega mikið.
Gaman að heyra um allar heimsóknirnar sem þið fáið og áhugann sem fólk sýnir ykkur, enda frábært starf sem þið eruð að vinna.
Ég hlakka til að koma á sólstöðuhátíð til ykkar.
Knús til ykkar allra. Kv. Hildur
ps. Ágústa ... jú, það vantaði hjálma á dömurnar, enda hljóp múttan 3 hringi við hlið þeirrar litlu. Eftir 3 hringinn ákvað ég/múttan að nú væri tímabært að byrja hreyfa sig meira :)
Kv. Hildur
http://picasaweb.google.com/gs2207/MyndirGunsa
Sendu inn athugasemd