Nú er enn aftur komið föstudagskvöld… vá hvað tíminn líður hratt þessa dagana. Þessir dagar eru yndislegir, svo bjartir, stilltir, svo fallegt og gott veður og það er svo bjart fram eftir öllu. Nú er klukkan rétt farin að ganga tólf og sólin er ekki ennþá sest. Ef þið hugleiðið það aðeins þá eru ekki nema 15 dagar í lengsta dag ársins en sumarsólstöður eru þann 21. júní. Eftir það fer dagurinn að styttast aftur… sumarið er í raun alltof stutt hérna hjá okkur frónbúum. Ekki það að ég kvíði haustinu því ég elska haustið, það hefur verið minn uppáhaldstími í gegnum tíðina.
Vikan er búin að vera frekar strembin og höfum við unnið alla daga og langt fram eftir öllu… frekar langir dagar… frekar þreytt hjón :-). Undirbúningurinn fyrir 100 ára afmæli Sveitarfélagsins Garðs, sem er um næstu helgi, er núna í hámarki og þarf að hnýta alla enda í næstu viku og klára að setja upp afmælishátíðina :-). Einnig er verið að klára undirbúninginn fyrir 17. júní hátíðarhöldin sem auðvitað verða haldin hátíðleg hér í bæ og verður aðal áherslan á börnin. Einnig er undirbúningurinn fyrir okkar yndislegu Sólseturshátíð sem verður haldin í lok mánaðarins eða 27. – 29. júní á fullu líka. Semsagt margt að gerast hjá Garðbúum þennan mánuðinn. Hellingur að gera í hönnuninni líka og höfum við ekki einu sinni komist yfir allt sem þarf að gera þar. Við erum búin að fresta nokkrum verkum alveg fram í júlí þar sem við hreinlega höfum ekki haft tíma til að sinna öllu vegna anna. Fullt að gera í framleiðslunni á vörunum okkar hjá Lyng líka, hefðum þurft að vera kominn með góðan lager núna… en það er víst ekki hægt að gera meira… það eru jú aðeins 24 tímar í sólarhringnum. Að vísu græðir maður ótrúlega mikinn tíma ef maður bara sleppir sjónvarpinu… þetta er svo mikill tímaþjófur :-(. Svo er auðvitað framundan líka að opna galleríið okkar í einhverri lítilli mynd til að byrja með auk þess sem við Ari verðum með myndlistarsýningu hérna í vinnustofunni okkar þann 14. júní í tengslum við afmælishátíðina um næstu helgi auk þess sem við erum að hjálpa Ásgeiri á Byggðasafninu við að setja upp ljósmyndasýningu fyrir sama tilefni. Semsagt í nógu að snúast þessa dagana og er óhætt að segja að við Ari látum okkur ekki leiðast frekar en fyrri daginn. Það er svo gott að vera lifandi :-) Kv.Ág.
föstudagur, júní 06, 2008
Annir vikunnar
... Ágústa
Labels: Dagbók
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 orð í belg:
Sendu inn athugasemd