Þegar litið er yfir bloggfærslurnar okkar síðasta ár þá er þetta mjög oft á þessa leið. Vorum að vinna frameftir, vorum að vinna öll undanfarin kvöld, vorum að vinna alla helgina, mikið að gera, nóg að gera í vinnunni. Er þetta eðlilegt? Gerist ekkert annað hjá okkur en vinna? Erum við með réttar áherslur? Ég er líka búin að hugsa mikið um það undanfarið hvað það er sem skiptir mig mestu máli. Það er einfalt svar: Ari og börnin. Svo er það fjölskyldan og vinirnir, að hafa í sig og á. Ég er ekki að sækjast eftir frægð eða frama að verða rík eða ríkari. Það eina sem ég vil er að mér og mínum líði vel. Þá skiptir litlu hvar ég er. Eins og segir í spakmælinu: Your home is where your heart is.
Mér líður rosalega vel hérna í Garðinum, hér er gott að búa og litlu börnunum líður vel hérna. Það er búin að vera mikil vinna að gera húsið upp, ásamt því að stofna og byggja upp nýja fyrirtækið meðfram því gamla og koma með barn í heiminn þar að auki. Maður er orðinn frekar þreyttur á allri þessari vinnu og gott væri að gíra sig svolítið niður. Það er dýrt að koma af stað nýju fyrirtæki og kaupa sér þetta stóra húseign en það sem hún kostaði fyrir tæpum fjórum árum þykir ekki mikið í dag en samt töluverður biti fyrir okkur.
Tekjurnar hafa auðvitað verið engar af nýja fyrirtækinu og spurningin er hvort það fari ekki örugglega að skila okkur einhverju. Hönnunarstofan gengur eins og alltaf - svona upp og niður. Maður veit aldrei hvernig næsta vika eða mánuður verður. Verkefni sem átti kannski að koma inn á borð í þessari viku kemur síðan ekki inn fyrr en í næstu viku og ruglar það öllum plönum og skipulagi. Ef annað stórt verkefni er á borðinu getur þetta verkefni sem frestaðist raskað öllu eða að maður þarf að vinna frameftir. Við erum búin að vera dugleg við að sækja okkur nýja kúnna hjá HH á þessu ári og er það að skila sér og vonandi á þetta eftir að ganga eins og við erum að vona. Við verðum að vera dugleg og vinna áfram mikið til að geta staðið við skuldbindingar okkar því það er dýrt að vera með fyrirtæki sem ekki skila arði en hirðir alla kraftana. Vinnan hjá Lyng - nýja fyrirtækinu fer vonandi að skila sér og hefur mikill tími farið í þróunarvinnu og að koma framleiðslunni í hagkvæman farveg fyrir okkur og neytendurna.
Talandi um það sem skiptir mestu máli... börnin þá tókum við þá ákvörðun að fjölga þeim tímum á viku sem við erum með þeim. Nú eru klukkutímarnir sem við erum aukalega með þeim, frá því sem var, orðnir 10. Þetta er frábært og svo dýrmætur tími. En þetta þýðir líka að við verðum að vinna oft á kvöldin. Það er samt þess virði :-). Nú þarf maður bara að hugsa þetta betur og skoða það hvort við viljum vinna svona mikið áfram. Ef tekjurnar fara ekki að hækka þá auðvitað getum við ekki þraukað þetta lengur og verðum að breyta einhverju fleiru.
Það sem ég er ánægð með er: Ég á frábæran eiginmann og sem er einstaklega góður vinur, yndisleg börn og stjúpbörn. Ég á þægilegt heimili þar sem mér líður vel. Ég er í skemmtilegri vinnu bæði hjá HH og Lyng og er að gera það sem mér finnst oftast gaman.
Það sem ég er ekki ánægð með er: Hvað ég hitti aðra fjölskyldumeðlimi og vini sjaldan orðið (enda flestir rosalega bissí). Hvað ég þarf að vinna mikið. Að vera ekki með meiri tekjur miðað við vinnu. Hefði viljað komast í meira frí en hefur verið undanfarin ár. Að geta ekki stundað myndlistina meira.
Ég fékk sendann texta frá góðri vinkonu minni fyrir um 7 árum og birti hann líka á blogginu okkar fyrir ári. Mér finnst gott að taka þennan texta annaðslagið upp og skoða. Því maður þarf að einbeita sér vel og gleyma sér ekki í brjálæðinu eins og oft vill verða. Hér kemur hann að vísu á ensku:
S L O W D A N C E
Have you ever watched kids
on a merry-go-round
Or listened to the rain
slapping on the ground?
Ever followed a butterfly's
erratic flight
Or gazed at the sun into
the fading night?
You better slow down
Don't dance so fast
Time is short
The music won't last
Do you run through each day
on the fly
When you ask "How are you?"
do you hear the reply?
When the day is done,
do you lie in your bed
With the next hundred chores
running through your head?
You'd better slow down
Don't dance so fast
Time is short
The music won't last
Ever told your child,
We'll do it tomorrow
And in your haste,
not see his sorrow?
Ever lost touch,
Let a good friendship die
'Cause you never had time
to call and say "Hi"?
You'd better slow down
Don't dance so fast
Time is short
The music won't last
When you run so fast
to get somewhere
You miss half the fun
of getting there.
When you worry and hurry
through your day,
It is like an unopened gift....
Thrown away...
Life is not a race.
Do take it slower
Hear the music
Before the song is over.
Kv. Ág.
sunnudagur, október 28, 2007
Hvað er það sem skiptir okkur máli?
... Ágústa 4 orð í belg
Vetur konungur gengur i garð
Í gær var fyrsti vetrardagur og byrjaði hann frekar snemma hér á Gauksstöðum. Krakkarnir vöknuðu snemma og vildu fara fram strax enda komin helgi og eins gott að nýta tíman vel við leik. Ari var farinn hér út úr húsi fyrir klukkan tíu að sinna skyldum vegna vinnunnar, ásamt því að hann fór að sækja fleiri fjölskyldumeðlimi og þar af einn nýjan. Birna og Hera komu semsagt með honum í gær og hann er rétt kominn frá því að skutla þeim heim til sín aftur. Nýji fjölskyldumeðlimurinn er köttur, nánartiltekið norskur skógarköttur eins og hinir tveir kettirnir. Já, það er ekki í lægi með okkur… ég veit að margir eru sammála mér núna :-). Þetta er „folatollurinn“ eftir að Golíat var lánaður á læðu en samt ekki undan honum heldur úr öðru goti hjá sama ræktanda. Þetta er svört læða og heitir hún Nótt, hún er um 14 vikna gömul. Frekar hæg og lætur lítið fara fyrir sér ennþá. Hún sækir mikinn styrk í hina læðuna hérna hana Sólbjörtu. Nótt er ekki vön krökkum og svona mannmörgu heimili þannig að þetta eru töluverð viðbrigði fyrir hana.
Það var gaman að fá stelpurnar hingar út í Garð en þær höfðu ekkert komið hingað að Gauksstöðum síðan 1. september síðastliðinn og höfðum við ekki hitt þær eiginlega neitt fyrir utan að þær komu með okkur á Snorrastaði um mánaðarmótin síðustu. Í gærkvöldi var borðuð hér íslensk kjötsúpa sem er að verða orðinn siður á þessu heimili fyrsta vetrardag en þetta gerðum við líka í fyrra.
Í morgun tók vetur konungur heldur betur á móti okkur, en hér var allt orðið hvítt af snjó þó ekki hafi snjórinn verið neitt svakalega mikill. Þennan veturinn varð fyrsti í sköfu þann sama dag og fyrsti snjórinn kom… þann 28.10.07. Það er frekar óvenjulegt þar sem oftast kemur „fyrsti í sköfu“ á undan snjónum. Upp úr tíu í morgun vorum við komin út að leika í snjónum ásamt Loga og Eimi. Krakkarnir voru ánægð með þetta og mér varð nú aðeins hugsað til þess að nú færi að líða að jólum. Þetta var hressandi en við dvöldum samt ekkert lengi úti þar sem Svavar er með töluverða hálsbólgu og hósta… best að fara sér hægt.
Þetta varð bara mjög góð helgi, unnum aðeins en hefðum samt þurft að vinna meira þar sem við erum búin að lofa hlutum núna strax eftir helgina og líka eins gott að standa við það :-). Annars var það góð hvíld að vinna ekki meira – gott að fá svolítið frí. Maður bara týmdi ekki að eyða þeim tíma í vinnu sem stelpurnar gátu verið með okkur. Vinnan er búin að taka alltof mikinn tíma hjá okkur undanfarið en svona virðist þetta alltaf vera hjá okkur… mikil vinna en alltof litlar tekjur :-(.
Nú er ýmislegt framundan; Hera verður 16 ára þann 1. nóv, Svavar 5 ára þann 10. María verður síðan 3ja þann 7. des. Við Ari erum á fullu að vinna vörur hjá Lyng fyrir jólin og margt fleira í gangi og ýmislegt væntanlegt hér inn á borð hjá Hennar hátign. Bara vonandi að allt gangi eftir í þeim efnum. Kv.Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
laugardagur, október 27, 2007
mánudagur, október 22, 2007
sunnudagur, október 21, 2007
Dagurinn í dag
Ég og krakkarnir urðum hádegis í dag en það þýðir að við vorum ekki búin að klæða okkur fyrr en eftir hádegi. Við vorum nú samt komin á fætur fyrir klukkan átta í morgun. Morguninn fór í „afmælisleik“ sem er leikur með bollastellið og fleira en hjá Maríu er þessi leikur í miklu uppáhaldi þessa dagana. Leikurinn á það til að teygja sig langt, langt út fyrir þeirra herbergi ;-). Krakkarnir horfðu einnig á DVD mynd á meðan við Ari tókum til og þrifum. Eftir hádegið vorum við Ari meira og minna að vinna alveg fram að kvöldmat og einnig núna eftir að krakkarnir sofnuðu. Við erum bara búin að komast yfir töluvert í dag, greinilegt að orkan var aðeins meiri í dag :-).
María er hætt með bleyju núna, er bara með hana á næturna og ef við erum að keyra langt þar sem erfitt er að komast á salerni. En við getum örugglega farið að sleppa þessu fljótlega þar sem hún heldur sér eiginlega orðið alveg þurri. Æji, María hún er svo dugleg stelpa og svo ánægð með þetta sjálf. Einnig höfum við minnkað notkunina á snuðinu ( sem var mjög mikil frá tveggja mánaða aldri… hún vildi helst ekki sleppa því). Það hefur gengið rosalega vel líka, en það kom mér mjög svo á óvart því ég hélt þetta yrði barátta, núna fær hún snuðið bara á næturna. Núna í desember verður María þriggja ára og þá á að taka snuðið alveg af henni. Ég er ekki eins kvíðin fyrir því núna eins og ég var áður en við minnkuðum notkunina. Eins og María sagði oftar en einu sinni í dag „ég er að verða stór“ :-).
Þar sem ég er farin að fjalla um það að hætta með bleyju, þá verð ég eiginlega að segja ykkur frá smá gullmola sem hann Svavar okkar á. Þegar hann hætti með bleyju á sínum tíma þá gekk þetta mjög vel hjá honum líka og um það leytið kom Einar bróðir upp til Íslands og var í heimsókn hérna hjá okkur. Þá var Einar eitthvað að spyrja Svavar „ertu hættur með bleyju?“ Þá Svarar Svavar „ já, og byrjaður á brók“ Ha ha hann er algjör rúsína! Eigið öll góða vinnuviku… yfir og út! Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
laugardagur, október 20, 2007
Frá helgi til helgar
Um síðustu helgi var ákveðið að vera bara heimavið enda næg verkefni fyrirliggjandi og þurftum við Ari líka að vinna þá helgi. Að vísu ekki allan daginn heldur gripum við í hlutina og unnum á kvöldin. Við vorum hér heima og fórum varla út úr húsi.
Á laugardeginum komu Dúddi, Ágústa og Sirrý litla okkur að óvörum og bankuðu hér uppá. Æðislegt að hitta þau og gaman að þau skildu kíkja á okkur. Þau stoppuðu frekar stutt enda áttu þau eftir að keyra alla leiðina inn í Þorlákshöfn aftur. Oftast gerum við helgarhreingerninguna á laugardagsmorgnum en þennan laugardaginn vorum við Ari að vinna á meðan krakkarnir léku sér og horfðu á barnaefni í sjónvarpinu. Þegar þau kíktu hérna inn þennan seinnipart var allt gjörsamlega í drasli hjá okkur… óvenju slæmt… enda hafði litlu verið sinnt nema því nauðsynlegasta s.s. þveginn þvottur , eldað, gengið frá að mestu í vikunni. Þetta var frekar vandræðalegt og var því hafist handa við helgarhreingerninguna þegar þau voru farin og hún kláruð á sunnudagsmorgninum. Þetta var töluvert meiri vinna en var áður en við fluttum upp enda stærri flötur og fleiri herbergi sem taka þarf til í. Þurfum að gíra okkur aðeins betur upp ;-)
Liðin vinnuvika var einnig hlaðin verkefnum og unnum við flest kvöld vikunnar eftir að Svavar og María voru sofnuð. Eftir leikskóla hafa krakkarnir bara leikið sér hérna inni og við reynt að taka þátt í leiknum með þeim að einhverju leyti en þau eru nú að verða svo dugleg að leika sér saman þó stundum - mjög oft :-) hlaupi hiti í leikinn. Þessir gríslingar!
Núna á föstudaginn, komu Þórarinn bróðir og Kristín litla og kíktu á okkur. Þau voru að sækja Olgu á völlinn og kíktu hérna við í leiðinni. Alltaf gaman þegar þau kíkja.
Í dag voru hlutirnir teknir bara rólega frameftir en við rifum okkur upp og fórum inn í borg upp úr hádegi. Til stóð að kíkja aðeins í nýju, stóru dótabúðina ,Toy’s ‘r’ us. Svavar var nefnilega búinn að ýta á okkur að fá að kíkja þarna inn. Við fórum hring í versluninni og virtum fyrir okkur herlegheitin, það er að segja, það sem við sáum því það var ekki þverfótað fyrir fólki þarna. Krakkarnir urðu ekkert æstir, frekar hissa að sjá þetta magn af dóti og ekki síður fólksfjöldann. María fékk fljótlega nóg, hún bara þoldi ekki við og spurði mig hvort við gætum ekki bara komið út. Svavar samþykkti það að við myndum skoða búðina bara betur síðar. Við leiddum þæga og góða krakka þarna út úr versluninni, ekkert væl eða neitt svoleiðis - mikið var ég ánægð með krílin mín. Þegar út var komið var farið að hleypa fólki inn í hollum, svona eins og fyrir utan skemmtistaðina, löng röð hafði myndast. Ég myndi aldrei nenna að standa í röð til að komast inn í verslun og þurfa svo að standa aftur í röð til að geta keypt eitthvað. Mikið vildi ég að ég væri með verslun sem væri svo vinsæl að röð myndaðist fyrir utan verslunina…:-). Ekki nóg með það að það væri fullt af fólki þarna heldur var fullt af fólki sem var að versla heilan helling. Vá maður magnið sem var verið að versla… er ekki allt í lagi? Halló! Þessi verslun verður þarna áfram og meira að segja von á annarri stórri leikfangaverslun fyrir jólin þannig við megum eiga þá jafnvel von á verðstríði. Annars leiðast mér alltaf risastórar verslanir eða verslanamiðstöðvar, ég verð alltaf svo þreytt og orkulaus eftir þannig ferðir enda fer ég helst ekki á þessa staði lengur… þetta eru algjörar orkusugur.
Við hættum ekki þarna heldur ákváðum að láta sjúga aðeins meiri orku frá okkur og fórum við því á sýninguna Heimili og hönnun. Ekkert svo frábær sýning, mikið sama dótið, alltaf aftur og aftur allstaðar þar sem hönnun er sýnd eða til sölu. Lítið um nýja hluti fannst mér. Það getur líka verið að búið hafi verið að sjúga úr okkur alla jákvæðu orkuna þannig þetta sé ekki marktækt mat ;-). Á leiðinni heim komum við við á Miklubrautinni hjá Birnu og Heru, þær kíktu aðeins út í bíl til okkar og knúsuðu krakkana í smá stund. Eftir þetta fengum við okkur að borða í Kópavoginum á American Style og brunuðum síðan heim. Mikið var gott að komast heim… ég held við séum að breytast í einhverja sveitalubba sem ekki þola að koma í menninguna :-). Home sweet home!
Nú er bara að fara að slappa af, komast inn í draumaheiminn og hlaða batteríin aftur svo að á morgun megi rísa nýr dagur sem fylli hjörtu okkar af hlýrri og góðri orku. Góða nótt! Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
Olga og co fá Íslensku byggingarlistarverðlaunin - Húrra!
Olga Guðrún Sigfúsdóttir (Olga hans Þórarins bróður) tók við Íslensku byggingarlistarverðlaununum 2007 í dag á Kjarvalsstöðum ásamt samstarfsfólki. Hún hefur unnið að þessu verkefni hjá VA arkitektum. Verlaunin fá þau fyrir lækningalind, Bláa lóninu og er þetta er í fyrsta skiptið sem þessi verðlaun eru veitt.
Lækningalind Bláa lónsins er sjálfstæð viðbót við Heilsulind Bláa lónsins. Í umsögn dómnefndar segir: „Með öguðu efnisvali og formi hússins eru dregin fram skörp skil á milli geómetrískra forma byggingarinnar og lífrænna forma náttúrunnar sem vekja sterk hughrif. Sérkennilegt andrúmsloftið endurspeglast í óvæntum samsetningum og frágangi þar sem grænu gleri og dökkri hraunklæðningu er teflt gegn hlýlegum viði. Öll smáatriði eru leyst á vandaðan hátt sem fellur að yfirbragði heildarinnar.“
Elsku Olga, til hamingju með þetta. Þú ert náttúrulega snillingur :-) Kv. Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
Illgresið dularfulla

Undanfarin sumur höfum við barist við sérstaklega kröftugt illgresi í garðinum okkar. Það er ekki nóg með að það leggi undir sig öll beð í garðinum heldur breiðir það úr sér á bílaplaninu og eiginlega allstaðar hér í kringum húsið. Þetta er jurt sem fjölgar sér með löngum ofanjarðarrenglum og hefur tent blöð með silfurlitum blæ. Hún ber gul blóm fyrri hluta sumars. Falleg jurt en frekar pirrandi vegna plássfrekju hennar. Í sumar var ég búin að ákveða að uppræta hana en áður en aðgerðir hófust fór ég í smá rannsóknarvinnu og komst að því að þetta er merkileg jurt. Hún heitir Tágamura á íslensku en Potentilla anserina á latínu og er gömul og víðfræg lækningajurt af rósaætt. Ekki nóg með það heldur var hún talin fæla frá nornir og illa anda. Snarlega var horfið frá því að eyða henni heldur fær hún að vaxa hér óáreitt nema kannski þegar hún er að kaffæra annan gróður.
... Ari 1 orð í belg
fimmtudagur, október 11, 2007
Hægviðri og þokuloft í fyrstu


Í morgun var mikil þoka hér við ströndina eins og sjá má á þessum myndum. Spáin fyrir Faxaflóa í dag: Hægviðri og þokuloft í fyrstu, en léttir síðan til. Vaxandi suðaustanátt síðdegis, 18-23 og talsverð ringing í kvöld. Sunnan 15-20 og súld á morgun. Hiti 7 til 12 stig. Núna undir hádegi er hér hið fínasta veður, sólskin og blíða, lítill sem enginn vindur og sólin glampar í dögginni sem myndaðist eftir þokuna í morgun. Yndislega fallegt á að líta :- ). Kv.Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
miðvikudagur, október 10, 2007
Gullmoli: SVAVAR
Ég verð að segja ykkur frá skemmtilegum ummælum sem voru látin flakka hérna einn daginn í vikunni. Þannig er mál með vexti að í tiltektinni um síðustu helgi þá kom ýmislegt rusl í ljós sem við vorum hreinlega búin að gleyma. Meðal annars var glær plastpoki, svona lítill nestispoki, sem var fullur af klínki. Ekkert rosalega stór upphæð. Fyrir augunum á Svavari Axeli var þetta á við fjársjóð. Þegar hann sá þetta brosti hann og spurði „Hver á þetta, mamma?“ Ég svaraði honum því að þetta væru smá peningar sem við pabbi hans ættum. Þá komu ummæli vikunnar sem er algjör gullmoli að mínu mati. Svavar leit alvarlegur á mig og hálf hvíslaði að mér „Mamma, eru þið pabbi ræningjar?“ Hann er algjör gullmoli þessi drengur. :- ) Kv.Ág.
... Ágústa 2 orð í belg
sunnudagur, október 07, 2007
Liðin vika
Við Ari vorum iðin í liðinni viku, mikið að gera og mikið að gerast. Fengum inn tvo nýja viðskiptavini í lok vikunnar hjá Hennar hátign og vonumst við til að þetta eigi eftir að ganga vel. Lítið var nú farið út að leika með krakkana í vikunni þar sem það ringdi og ringdi stöðugt og mikið. Á laugardag stytti svo upp og var hér yndislegt veður alla helgina sérstaklega núna í dag þar sem varla bærðist hár á höfði og var sjórinn nær alveg sléttur, enda tókst Ara að sjá eina tvo hvali þegar hann var hérna austan við gamla fjósið að leika við Svavar. Því miður missti ég af þessu. Annars vorum við á fullu alla helgina að taka til og koma upp aðstöðunni fyrir Hennar háting og Lyng hér á neðri hæðinni. Ekki er allt búið enn og vorum við alveg að gefast upp þegar við vorum búin að róta í draslinu og færa það til svo hægt væri að byrja að fást við tiltektina almennilega og þrifin. Við höfðum það á orði að kannski væri bara best að hafa samband við sjónvarpsþáttinn á Skjáeinum „Allt í drasli“ þar sem fólk kemur og gerir þetta allt saman fyrir mann :-). Í dag fórum við aðeins út og nutum veðursins. Svavar og María fóru út og hjóluðu og sýndu Svavari afa sínum og Huldu hve dugleg þau eru að hjóla. En Svavar og Hulda kíktu semsagt á okkur í dag og fengu nýbakaðar pönnukökur og vínarbrauð. Það var óvenju gestkvæmt þessa helgi og kíkti Garðar bróðir á okkur í gær og borðaði með okkur kvöldmat. Allatf gaman að fá góða gesti. Takk fyrir góða samverustund öllsömul. Hafið það gott og vonandi eigið þið sem þetta lesið góða viku í vændum og biðjum við hér á Gauksstöðum góða nótt. Kv.Ág.
... Ágústa 1 orð í belg
Síðasta helgi
Helgin fyrir viku síðan var mjög skemmtileg. Seinnipartinn á föstudag var haldið af stað héðan úr Garðinum, komið við í Reykjavík og Birna og Hera teknar með en leiðin lá á Snorrastaði á Mýrum. Fjölskyldan hans Ara var að hittast, í hinni árlegu sumarbústaðarferð. Þarna dvöldum við fram á sunnudag. Mjög skemmtileg ferð. Það rigndi náttúrulega heil ósköp allan tímann þar til á sunnudag en þá var komið hið besta veður með sól og öllu. Ýmislegt var brallað.
Farið var í heitapottinn og höfðu Svavar og María mjög gaman af. Höfðu allir á orði hve notalegur hann var. Við Ari hefðum alveg vilja dvelja þarna alveg heilt kvöld. Það væri nú gott að hafa svona pott hér að Gauksstöðum og geta farið í pottinn og látið þreytuna líða úr sér eftir erfiðan dag, kannski með svona einn bjór líka… ahhhh manni bara hlýnar við tilhugsunina :-).
Hluti úr hópnum tók þátt í að reka fé og standa fyrir svo rollurnar tækju ekki á rás eitthvert út í buskann. Þetta tókst með ágætum þó ekki hafi munað miklu á köflum. Smalarnir fengu þakki fyrir og þegar Kristlaug svaraði og sagði „það var ekkert við höfðum bara gaman af þessu“ svaraði gamli maðurinn „æji ég læt það nú vera“. :-).
Engin skemmtiatriði voru skipulögð og ekkert bólaði á Jón Spæjó :-) Hvernig sem á því stóð. ????? Ég mætti með smá leik sem tókst með ágætum og held ég að flestir hafi haft gaman af. Þetta voru einar 16 þrautir og gátur sem tvö lið, skipt í „stráka“ og „stelpur“ ,áttu að leysa í sitthvoru lagi og stóðu þau sig mjög vel og ótrúlegt hve lík svör komu frá liðunum - einnig í svörunum sem voru röng :-). Þessu lauk með jafntefli á endanum. Ég lék við krakkana á meðan liðin bræddu úr heilasellunum, hefði samt alveg viljað taka þátt því liðin skemmtu sér vel við tillögugerð um hinar furðulegustu ráðgátur. Kolbrún hans Gunnars kom með Trivial Persuit og um kvöldið skipti hún síðan öllu fólkinu í þrjú lið og haldin spennandi keppni. Þetta var mjög gaman en ég held samt að einhver öfl hafi verið að verki gegn liðinu mínu því við virtumst alltaf vita svörin við spurningum sem aðrir áttu að svara en einhvernveginn vissu við sjaldnast rétt svar við okkar eigin spurningum :-(. Þetta varð mjög skemmtilegt og spennandi leikur… gott hjá þér Kolbrún!
Núna gistum við öll saman í einu stóru húsi með mörgum, mörgum herbergjum með innbyggðu gufubaði ;-) en undanfarin ár höfum við leigt þrjá bústaði hlið við hlið og borðað saman í einum þeirra. Þetta varð öðruvísi og var hópurinn meira þjappaður saman fyrir vikið og er ég ekki frá því að það hafi gefið góða raun… hvað fannst ykkur sem tókuð þátt? Það kom upp hugmynd um að hittast kannski tvisvar á ári en ekki bara einu sinni. Hvernig líst ykkur á það? Viljum við Gauksstaða-liðið þakka ykkur öllum kærlega fyrir yndislega helgi. Kv. Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
Afmæliskveðjur
Vinkona okkar hún Ragnheiður Elín varð fertug þann 30. September síðastliðinn. Hún hélt upp á afmælið sitt þann 29. En því miður komumst við ekki í veisluna. Ég vil nota tækifærið og óska henni til hamingju. Elsku Ragga til hamingju með daginn um daginn, vonandi var öll helgin þér ánægjuleg. Við vorum að hugsa um að kíkja á þig núna um helgina en ekkert varð af því en við reynum að kíkja á þig við fyrsta tækifæri.
Þórarinn bróðir átti síðan afmæli núna þann 3. október og ég vil elsku bróðir óska þér til hamingju með daginn líka. Nú er kominn tími á að hittast og fara á einhverja myndlistasýningu og kaffihús saman. Vonandi hafið þið það gott öllsömul. Verðum í bandi í vikunni. Kv. Ág.
... Ágústa 0 orð í belg











