Þá er komið að því sem margir hafa beðið eftir… alla vega þeir sem eru alltaf að spyrja okkur „eruð þið flutt upp?“ Við erum semsagt loksins flutt upp í íbúðina okkar hérna á efri hæðinni. Hefðum bara átt að vera farin upp fyrir löngu. Við erum ekki búin að klára samt allt hérna sem þarf að gera en þetta kemur allt saman. Svavar og María eru ekkert búin að vera smá spennt alveg frá því á föstudaginn þegar við tókum endanlega ákvörðun um að þetta yrði helgin sem við myndum flytja. Semsagt laugardagurinn 22. September er dagurinn… þremur árum og rúmum sjö mánuðum eftir að við fluttum hér að Gauksstöðum. Já, það er þetta langt síðan :-) Tíminn líður hratt, María er að verða þriggja ára núna í desember og Svavar fimm ára. Við Ari erum samt alltaf jafn ótrúlega ung – eða þannig ;-) Svavar litli strákurinn okkar er að verða svo stór, nokkrar tennur eru byrjaðar að losna hjá honum… næsta haust byrjar hann í skóla. Í leikskólanum er hann í skólahópnum en það þýðir að það er byrjað að undirbúa þau fyrir skólann á næsta ári og er þarna einhverskonar samstarf eða samskipti á milli leikskólans og Gerðarskóla að ræða. Þau koma til með að heimsækja skólann o.s.frv.
Bæði Svavar og María eru búin að taka þátt flutningunum með okkur núna um helgina. Það tók nú sinn tíma að taka til dótið þeirra og sortera og flytja upp í nýja herbergið þeirra. Þau voru svo dugleg að fara að sofa og svo spennt fyrir nýja svefnherberginu. Þetta er í fyrsta skiptið sem þau sofa í öðru herbergi en við Ari og gekk það bara mjög vel en þau sváfu alveg fram yfir klukkan sjö í rúmunum sínum. Þau að vísu sofnuðu upp í rúminu okkar og við bárum þau síðan í rúmin sín eftur að þau voru sofnuð eins og við gerðum í kvöld líka. Það sváfu bara allir vel fyrstu nóttina okkar hérna í þessari yndislegu íbúð okkar hérna á efri hæðinni. Við erum auðvitað ekki búin að koma okkur alveg fyrir en þetta mjakast áfram. Það voru nú allir eitthvað þreyttir núna í kvöld eftir erfiði og spenning helgarinnar. Loksins varð þetta að veruleika! Hafið það gott—góða nótt. Kv.Ág.
sunnudagur, september 23, 2007
Lífið er gott á Gauksstöðum
... Ágústa 5 orð í belg
mánudagur, september 17, 2007
Afmæli, afmæli, afmæli…
Það eru margir búnir að eiga afmæli undanfarið. Árni Þór varð 5 ára 26. ágúst síðastliðinn og við fórum í góða veislu til hans. Einar Bjarki bróðir minn átti svo afmæli þann 28. ágúst. Svandís Þóra og Fríða frænkur mínar þann 1.sept. Hulda og Sigga frænka þann 2.sept. Þann 8. átti Alda afmæli. Steinunn hans Gunnars bróður Ara átti afmæli þann 11. Brúðkaupsafmæli áttu Gunnar og Steinunn þann 3ja og Guðjón Ingi og Ragga þann 16. Viljum við óska ykkur öllum innilega til hamingju með daginn ykkar. Kærar kveðjur frá okkur öllum. Kv.Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
…og svo einni viku síðar
Síðastliðin vika varð frekar „heavy“ alltaf nóg að gera. Breytingin á viðverutímanum á leiksskólanum er greinilega til batnaðar. Þau Svavar og María voru ekki nærri eins þreytt þessa vikuna og höfðu bara næga orku eftir leikskóla til að bralla eitthvað, svo ekki sé minnst á tímann sem við höfum haft með þeim frá 7-9 á morgnana :-). Veðrið er að vísu búið að vera frekar vindasamt og blautt þessa dagana, dálítið ólíkt því sem var hér í sumar. Greinilegt er að haustið er á næsta leyti. Helgin varð vinnuhelgi eins og svo oft undanfarið. Við gátum að vísu notið sunnudagsins því við fórum upp í Haukadal að Geysi. Við sáum hann að vísu ekki gjósa en Strokkur stendur alltaf fyrir sínu. Við áttum erindi uppeftir vegna Lyng en við erum með skáp þar sem þurfti að yfirfara og fylla á. Á bakaleiðinni komum við við á Laugavatni, kíktum þar í lítið gallerí, borðuðum eplaköku á Lindinni (frekar fyndin lífsreynsla) en þangað höfðum við ekki komið síðan 1996 þegar við fórum þangað með Einari Bjarka og Liv. Á leiðinni heim reyndum við að heimsækja bæði tengdapabba í Hveragerði, Þórarinn bróður og fleiri vini en það var bara enginn heima hjá sér þennan sunnudag frekar en við sjálf ;-). Við vorum öll orðin frekar þreytt um kvöldið og Svavar var farinn að hósta töluvert. Hann hóstaði líka reglulega um nóttina, þannig við vorum ekkert voðalega spræk í dag… allir frekar þreyttir. Stefnt er að því að sofna bara snemma í kvöld til að safna orku fyrir restina af vikunni. Góða nótt! Kv. Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
mánudagur, september 10, 2007
Viðveran stytt í leikskólanum
Vinnudagurinn hjá Svavari og Maríu er ansi langur, frá 8-17 eða um níu tímar sem er alltof mikið fyrir svona litla kroppa. Þar sem María er hætt að sofa á daginn þá er hún frekar þreytt þegar hún kemur heim úr leikskólanum. Það er Svavar líka. Við erum búin að vera að hugleiða það undanfarið að kannski stytta tíman sem þau eru í leikskólanum. Í dag tókum við af skarið og fengum vistunartímanum breytt. Þau fara þá ekki fyrr en klukkan 9 á morgnana og við sækjum þau klukkan fjögur. Þetta legst bara vel í okkur og okkur Ara líður mjög vel með þessa ákvörðun. Þetta þýðir að krakkarnir eru tveimur tímum meira með okkur á hverjum degi :-) Kv.Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
Helgin hin notalegasta
Klukkan fimm á föstudaginn vorum við komin í helgarfrí. Litla fjölskyldan hérna á Gauksstöðum ákvað að nú skyldum við eiga rólega og notalega helgi. Það varð raunin… laugardagurinn byrjaði snemma, krakkarnir dunduðu sér með dótið sitt, við Ari tókum helgarhreingerninguna en það veitti ekki af henni þar sem ekkert var þrifið helgina á undan. Upp úr hádegi stóð til að fara bæði með Svavar og Maríu í bíó á „músamyndina“ eins og María kallar hana. En þar sem María var orðin ferlega þreytt um hádegið og hreinlega lognaðist útaf, þá drifu feðgarnir sig bara saman í bíó. Krakkarnir voru mjög þreytt eftir langa vinnuviku og mátti sjá á þeim báðum þreytumerki bæði á föstudag og laugardag enda sofna þau bæði mjög snemma á kvöldin þessa dagana, litlu skinnin.
Sunnudagurinn varð enn rólegri og var ákveðið að fara ekki neitt heldur dunda okkur hérna heima. Ég þreif að vísu gluggana að utan á neðri íbúðinni, Ari sagaði nokkrar greinar af trénu okkar hérna við húsið á meðan við krakkarnir lékum okkur aðeins hérna úti í kuldanum og rokinu. Við vorum nú ekkert mjög lengi úti en við Svavar bjuggum til nýjan leik sem heitir Steinaleikurinn… leikur sem gæti þróast á skemmtilegan hátt : -) Um kaffileytið kíktu Þórarinn, Olga og Kristín til okkar og voru fram yfir kvöldmat hérna hjá okkur, okkur til mikillar ánægju. Alltaf gaman að fá góða gesti. Einnig kíkti Eyrún vinkona Olgu hérna við ásamt annarri vinkonu sinni, en hana var búið að langa að sjá pleisið okkar. Um kvöldið sofnuðu allir sælir og þreyttir. Kv.Ág.
... Ágústa 0 orð í belg
sunnudagur, september 09, 2007
Áframhaldandi skýrsla :-)
Eftir útileguna í Slakka í ágúst forum við bara í eina ferð norður til Akureyrar til að kíkja á foreldra mína og fara á Handverkssýninguna á Hrafnagili. Þetta var skemmtileg ferð og við fórum m.a. í jólahúsið hjá Benna og í kakó og vöfflur í Laufás hjá Ingu. Mæli með vöfflunum og súkkulaðinu í Laufási. Það munaði nú samt ekki miklu að við yrðum að hætta við þessa ferð norður en við gerðum allt sem í okkar valdi stóð til að að þessu gæti orðið, við ekki mjög miklar vinsældir allra.
Það varð nú ekki mikið um frí hjá okkur í sumar. Tækifærin voru nú ekki mörg og þegar eitthvað stóð til var bara eins og allt væri á móti okkur. Við urðum að fresta ferð um einn dag og stytta hana, komumst ekki síðan í ferðina á Snæfellsnesið þar sem Svavar varð veikur. Við vorum bara eitthvað svo bundin yfir öllu hérna heima. Við verðum að skipuleggja næsta sumar betur en þetta og sjá til þess að við séum ekki að lofa okkur of mikið og binda. Krakkarnir eiga meira frí skilið þó þau hafi nú notið sumarsins ágætlega held ég.
Sumarið varð bara ágætt en samt erum við Ari frekar þreytt eftir sumarið en hefðum þurft að hvíla okkur svolítið og njóta þess að vera í fríi. Núna síðla sumars hefur verið nefnilega verið mikið að gera hjá okkur bæði hjá Lyng og í hönnuninni. Tildæmis ætluðum við að eiga frí um þar síðustu helgi og fara norður en þá kom inn nýr viðskiptavinur hjá Hennar hátign með verkefni sem krafðist þess að verkið yrði unnið fljótt og því þurftum við að fara að undirbúa það strax um helgina. Við þurfum virkilega á meiri tekjum að halda þannig við gátum eiginlega ekki sagt nei við svona verkefni.
Þetta verkefni var að brjóta um og setja upp tímaritið Iceland Review fyrir útgáfufyrirtækið Heim. Verkefnið var yfirgripsmikið og teygði sig alveg yfir síðustu helgi líka þannig að við urðum að sleppa Ljósanótt í Reykjanesbæ en við höfðum hugsað okkur að njóta þessarar helgar í fríi og halda upp á afmælið mitt á sunnudeginum og ljúka svo afmælisdeginum á tónleikum í Laugardalshöll með Noru Jones.
Vegna þess hvað allt var orðið tæpt, lokapróförk varð að vera til á sunnudagskvöld og verkinu varð að ljúka og fara í prentun á mánudag þá ákváðum við á laugardeginum að leigja bara herbergi á hóteli í Reykjavík frá hádegi á sunnudegi fram að hádegi á mánudag. Sem betur fer gerðum við þetta því þetta hefði enganveginn gengið upp annars. Ari varð að vísu að skuttlast inn í Keflavík seinnipartinn á sunnudag til að sækja Birnu sem var að vinna í Kaffitári um helgina, því hún og Hera ætluðu að passa krakkana á meðan við færum á tónleikana. Birna fékk að hætta aðeins fyrr en hún átti að vera búin að vinna kl. 19. Við rétt náðum tónleikunum (sem betur fer : -)). Tónleikarnir voru æðislegir, frábær söngkona og frábær hljómsveit. Það sem setti samt smá skugga á þennan viðburð var hve dónalegir margir gestanna voru, þeir voru að mæta alveg hálftíma eftir að tónleikarnir byrjuðu og þar sem byrjunin var frekar lágstemmd þá var þetta mikil truflun. Krakkarnir nutu sín að fá að gista á hóteli en þetta er fyrsta skiptið þeirra :-)
Síðastliðin vika er búin að vera pökkuð. Mikið að gera á öllum vígstöðvum, salan hjá Lyng ætlar að vera góð núna síðla sumars eins og í fyrra og er aukningin mikil á milli ára. Hennar hátign er að landa nokkrum nýjum kúnnum þessa dagana þannig að við getum ekki kvartað. Haustið ætlar að verða gott hjá okkur og vonandi gefst okkur samt tími til að gera eitthvað skemmtilegt saman litlu fjölskyldunni á Gauksstöðum. Yfir og út! Kv.Ág.
... Ágústa 0 orð í belg