fimmtudagur, ágúst 23, 2007

Dúfur eru ekki alltaf friðar-dúfur


Við lentum í vægast sagt mjög undarlegu atviki hér fyrr í sumar. Þegar húsbóndinn renndi í hlað einu sinni sem oftar voru tvær dúfur á hlöðuþakinu og voru þær augljóslega par. Þær voru hinar rólegustu og þáðu brauðbita af húsráðendum og þótti Svavari og Maríu þetta besta skemmtun. Síðan voru þær fljótlega farnar að færa sig uppá skaftið og settust á handleggi til að þiggja brauðbita úr hendi. Fljótlega fór þó að kárna gamanið. Dúfnaparið sat á útigrillinu sem er alveg við útihurðina og reyndi ítrekað að smeigja sér inní húsið til að komast í brauðpokann, líklega. Endaði þetta með því að þær löbbuðu inn þegar hurðin var skilin eftir opin og eftir mikinn eltingaleik og fjaðrafok tókst loksins að henda þeim út. Þær voru hér á vappi eitthvað lengur en hafa líklega fundið að þær voru ekki lengur velkomnar svo að einn daginn voru þær farnar. Við segjum bara: Farið hefur fiður-fé betra.

Haustar að


Nú er langt liðið á sumarið okkar stutta hér á klakanum og haustið er rétt handan við hornið með tilheyrandi myrkri og kulda. Þetta er reyndar uppáhaldstími okkar Ágústu. Þetta er tími kerta og kósilegheita, göngutúra og uppskeru. Bráðlega förum við í berjamó og síðan í gæsa- og andaveiði þar sem við veiðum okkur í matinn og þjálfum hundana í leiðinni. Þetta verður gott haust.

miðvikudagur, ágúst 08, 2007

Afmæliskveðja

Hann Örvar Ernir frændi minn er 5 ára í dag. Elsku Sonja, Elvar og Selma til hamingju með stóra strákinn. Örvar minn til hamingju með afmælið, sjáumst öll vonandi fljótlega :-). Kveðja frá garðálfunum á Gauksstöðum. -Ág.

mánudagur, ágúst 06, 2007

Smá skýrsla

Lítið hefur verið bloggað undanfarið enda bloggararnir búnir að vera í bloggfríi við lítinn fögnuð sumra. Maður verður nú samt að fá frí frá einhverju, því lítið hefur farið fyrir sumarfríi á þessu heimili. Við höfum þó ekki unnið á fullum krafti; fengið að sofa lengur, reynt að sinna eitthvað börnunum og gestum og gangandi líka. Núna er ein vika eftir í fríi hjá krökkunum og fjórar búnar. Ýmislegt er búið að gerast á þessum tíma. Fyrstu og aðra vikuna var bara unnið og lítið annað gert.

Þann 14. Júlí komu Einar Bjarki og fjölskylda frá Noregi til dvalar á Íslandi í rúmar tvær vikur. Fyrstu helgina dvöldu þau hjá okkur ásamt föður mínum, Garðari bróður og syni hans honum Bergvini Leif sem komu til að taka á móti Íslandsförunum. Þau héldu síðan öll til Akureyrar þar sem dvalið var fram að vikudvöl í Munaðarnesi en mamma hafði fengið bústað þar á leigu. Stappað var á tímum í bústaðnum og kíktum við öll systkinin þangað bara á mismunandi tímum þannig að ekki varð neitt úr því að allir næðu að hittast… því miður :- (. Þórarinn bróðir var hjá þeim megnið af tímanum. Garðar bróðir var eina tvo daga að mig minnir. Viðar bróðir var einn dag .Við Gauksstaðaliðið ásamt Birnu og Heru kíktum á þau fyrstu helgina 21-22. Júlí síðan kíktum við Ari og litlu krakkarnir einnig á þau í vikunni á eftir þegar við tókum okkur dags frí. Í lok vikunnar stóð til að við hittum þau á Snæfellsnesinu og gistum með þeim eina nótt í tjaldi eða á hóteli. Því miður þá komumst við aldrei í þessa ferð þar sem hann Svavar okkar var kominn með hósta og hita. Dagana á eftir tókum við því frekar rólega enda hafði veðrið orðið svolítið „íslenskara“ og Svavar ekki orðinn alveg nógu góður. Haldið var upp á afmælið hans pabba þann 30. júlí með dinner á Gauksstöðum og þangað mætti Þórarinn og fjölskylda. Elsku pabbi til hamingju með daginn það var gaman að fá að njóta hans með þér. Ég gleymdi samt að „baka“ handa þér köku eins og ég gerði forðum en Ari sá um baksturinn núna :-). Við fórum smá rúnt með Einari Bjarka og fjölskyldu ásamt foreldrum mínum hér á Reykjanesinu á miðvikudeginum, við skoðuðum samt ekki svæðið neitt eins og við hefðum viljað enda Norsararnir búnir að fá nóg af keyrslu vítt og breytt um landið. Við kíktum í Duus hús, fengum okkur að borða Thai-Keflavík í hádeginu, komum við og fengum okkur kaffi og með því í Kaffitári hjá Birnu í Njarðvíkinni og héldum síðan til Grindavíkur þar sem við hittum hana Erlu móðursystur. Þar skoðuðum við Gesthús þar sem Erla er með handverkið sitt til sölu, skoðuðum nýja húsbilinn þeirra og vínberjaræktunina. Alltaf gaman að hitta Erlu og Jón. Elsku Erla og Jón, takk innilega fyrir góðar móttökur. Á fimmtudaginn héldu síðan ferðalangarnir til Noregs. Elsku Einar, Líf, Einar Mar og Ida, takk fyrir samverustundirnar við hefðum samt alveg viljað geta sinnt ykkur meira en svona er þetta bara. Vonum að ferðin til Íslands hafi verið ánægjuleg og eftirminnanleg fyrir ykkur.

Mamma og pabbi dvöldu hjá okkur fram á föstudag. Pabbi var búinn að vera að hjálpa Ara úti í fjósi í tilfærslum og tiltekt, dagana á undan. Mikil hjálp í þessu elsku pabbi… takk fyrir! Mamma og pabbi takk góðar samverustundir… alltaf gaman að fá ykkur í heimsókn.

Strax á föstudag fórum við inn í Reykjavík (vorum að afhenda vörur fyrir helgina) eftir að vinnunni lauk dunduðum við okkur í borginni, keyptum smá dót handa Svavari og Maríu og CD-disk hand okkur, kíktum á Gunna og Tótu og höfðum það notalegt. Komum ekki heim fyrr en liðið var töluvert á daginn. Alltaf gaman að hitta fjölskylduna í Kópavoginum. Elsku Gunni, Tóta, Guðný og Berglind, takk fyrir að taka á móti okkur. Við verðum bara að hittast aðeins oftar ;-).

Á laugardag fórum við síðan litla fjölskyldan á Gauksstöðum í fyrstu útileguna í sumar og fyrstu tjaldútileguna í nokkur ár. Hvernig stendur eiginlega á þessu… þetta er svo skemmtilegt. Við fórum rúnt um Suðurlandið. Kíktum á kisugot hjá Katrínu á Stokkseyri. Fengum okkur kaffi á Bláa hafinu og gengum í svörtri fjörunni. Versluðum inn fyrir kvöldið á Selfossi og brunuðum í rífandi roki upp í Slakka í Laugarásnum. Þar var skjól inni á milli trjánna og þar tjölduðum við og gistum í eina nótt. Svavar og María voru ekkert smá dugleg og skemmtu sér gífurlega. Þau náðu bæði að sofna rúmlega ellefu þrátt fyrir mikinn hávaða. Hljóð var komið á um 2 leytið og nóttin var bara yndisleg. Svolítið hart var að liggja á þunnu dýnunum okkar en vindsængin lekur eitthvað og pumpan er orðin ónýt. Krakkarnir áttu það til að skríða út úr svefnpokunum um nóttina og vorum við Ari alltaf að pakka þeim „niður“. Við áttum eiginlega von á þessu þar sem þau hafa aldrei sofið með sængur… þau sparka þeim alltaf af sér um leið. Á sunnudaginn kíktum við auðvitað á dýrin í Slakka en því miður þá er þetta eitthvað að hraka þarna hjá þeim þrátt fyrir mikla aðsókn en ég held það sé rétt tekið eftir hjá okkur en þau sögðu að það hefðu komið um 700 manns þarna á laugardeginum. Það kostar 600 kr. inn fyrir fullorðna og 400 fyrir börn, þau allra yngstu þurfa ekki að borga þannig að María fékk frítt inn. Það var brunað í sund í Hveragerði og ís í Eden (veit ekki alveg af hverju maður kemur þarna aftur og aftur – kannski einhver nostalgia). Á leiðinni heim komum við við hjá Birnu og Heru og kipptum þeim með okkur hingað í sveitina. Þetta voru bara góðir dagar og vonandi verður dagurinn í dag góður líka. Á þriðjudag er svo auðvitað vinna en vonandi tekst okkur að fara á næstunni eitthvað í frí svona dag og dag. Hafið það sem allra best og nú verða bara allir að leggjast á bæn og óska eftir jafn góðu hausti og sumrið er búið að vera hingað til. Kv. Ág.